158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

Störf þingsins.

[13:32]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Að þessu sinni ætla ég að ræða umhverfismál. Ef velja ætti það jarðefnaeldsneyti sem veldur minnstum gróðurhúsaáhrifum er gas þar efst á blaði, síðan olía en brennsla á kolum veldur mestum gróðurhúsaáhrifum. Brennsla kola til orkuframleiðslu er t.d. 70% meira mengandi miðað við orkueiningu en brennsla gass, ef miðað er við meðalorkugjafa þeirra tegunda. Nú um stundir á brennsla kola sök á um 41% af útblæstri jarðefnaeldsneytis á þessum óæskilegu lofttegundum í heiminum og um 20% í Evrópu. Hvað er skynsamlegast að gera í slíkri stöðu, frú forseti, ef menn vilja raunverulega vera umhverfisvænir? Á meðan staðan er þessi er auðvitað eðlilegast að auka vinnslu á olíu og gasi til að leitast við að minnka brennslu á kolum. Og hvað eru menn að gera? Hvað eru menn svo að gera? Nú berast þær furðufréttir að Evrópusambandið hyggist halda fast við kröfur sínar um bann við nýrri olíu- og gasvinnslu á norðurslóðum og mun það vera liður í endurskoðun á stefnu sambandsins í málefnum norðurslóða. Þessi afstaða Evrópusambandsins mun óbeint valda örðugleikum við olíuleit og vinnslu á nýjum orkulindum og það jafnvel þó að það sé utan seilingar sambandsins. Þessi tiltekna afstaða er okkur Íslendingum þó ekki með öllu ókunn því síðasta ríkisstjórn lagði ítrekað fram frumvarp um bann við olíuleit í íslenskri lögsögu, sem dagaði sem betur fer uppi.

Frú forseti. Þessi afstaða, að koma í veg fyrir að minna mengandi orkugjafar geti leyst hina meira mengandi af hólmi, er í raun fáránleg og minnir mig á að vísu sem margir kannast við og er hvatning til að láta ekki aðgerðaleysið taka yfir og bera sig eftir björginni:

Lati-Geir á lækjarbakka,

lá þar til hann dó.

Vildi ekki vatnið smakka,

var hann þyrstur þó.

Sjálfsagt er að girða ekki fyrir möguleika Íslendinga á að nýta auðlindir okkar og leitast við að brenna fremur eldsneyti sem mengar minna (Forseti hringir.) og í þeim efnum hefur Miðflokkurinn lagt fram tillögu um að hafnar verði að nýju markvissar rannsóknir á olíu- og gaslindum á landgrunni Íslands.