Störf þingsins.
Frú forseti. Ríkisstjórnin talar gjarnan um gagnsæi þegar kemur að sjávarútveginum og atvinnulífinu. En hvernig birtist það gagnsæi í þeirra eigin verkum? Í fjárlagafrumvarpinu kemur fram að ein skattahækkun eigi að skila 3 milljörðum, önnur 4 o.s.frv., en við fáum ekki að sjá hvaða forsendur liggja að baki þessum tölum. Hvernig er tekið tillit til þess að fólk og fyrirtæki breyta hegðun sinni þegar skattar hækka, eða er kannski ekkert tekið tillit til þess? Í skriflegu svari frá fjármála- og efnahagsráðherra til mín um hvernig skattar þessa árs skiluðu sér miðað við áætlun kemur fram í stuttu máli að það sé ekki hægt að veita mér þær upplýsingar. Hugsum okkur fyrirtæki þar sem stjórnendur kynna fyrir stjórn fjárhagsáætlun næsta árs. Þar er gert ráð fyrir mikilli tekjuaukningu og árið endar í plús en svo er sagt: Við getum samt ekki sýnt ykkur hvernig við áætlum þessar auknu tekjur eða hvaða forsendur liggja að baki þeim. Engin stjórn myndi samþykkja slíkt og Alþingi á ekki heldur að gera það.
Nú ræðum við skattahækkanir næsta árs án þess að fá að sjá skýrt hvernig hækkanir þessa árs eru að skila sér. Er það boðlegt? Ef vinnulag ríkisins er með þessum hætti þarf að breyta því. Í Bretlandi eru birt mánaðarleg viðmið fyrir ríkistekjur og fylgst opinberlega með frávikum. Við hljótum að geta gert slíkt hið sama. Það virðist alltaf ekkert mál að setja meiri kvaðir á atvinnulífið en svo er önnur saga þegar kemur að ríkinu sjálfu. Betri opin mælaborð ríkisfjármála ætti að vera lágmarkskrafa og sérstaklega hjá ríkisstjórn sem talar fyrir auknu gagnsæi.