Störf þingsins.
Frú forseti. Hver hefur ekki rifið upp Monopoly á spilakvöldi? Allir reyna að kaupa Kringluna og Smáralindina en guð forði manni frá fangelsinu. Ég vildi alltaf vera skórinn en bróðir minn vildi vera bíllinn. Teiknum upp smá mynd: Kalli í Monopoly-landi ákveður að ferðast til Matador-lands og skoða náttúruna og fara í baðlónin sem landið er frægt fyrir. Kalli tekur auðvitað Monopoly-peninga með sér til að eyða. Jóna á Suðurlandi í Matador-landi er búin að leggja allt undir og byggja upp baðlón og búið er að bóka hópinn sem Kalli er í ofan í lónið. Jóna er búin að verðleggja aðgangsmiða með það í huga að ferðaþjónustan sé í neðra virðisaukaskattsþrepi, því það er jú borgað að mestu með fjármagni sem kemur frá útlöndum og gerir þessa grein að útflutningsgrein. Henni fannst frábært að geta verðlagt miðann aðeins ódýrara út af þessu og þá erum við með samkeppnisforskot á önnur lönd. Svo kemur skellurinn. Stjórnvöld í Matador-landi ákveða að skila hallalausum fjárlögum og taka baðlónin út fyrir sviga og færa þau upp um þrep, um heil 14%. Jóna klórar sér í hausnum yfir þessu. Hún er búin að byggja upp og bóka ofan í lónið marga hópa frá Monopoly-landi og búin að gera verðskrá fyrir árið. Hún verður einfaldlega að taka skellinn á sig. Ekki nóg með að þetta hafi verið hækkað heldur er byrjað að rukka fyrir aðgang að nokkrum af náttúruperlum Matador-lands. Hún byrjaði að sjá afbókanir og velti fyrir sér hvort lónið myndi einfaldlega lifa þetta af. Henni fannst fyrirsjáanleikinn afar góður þegar hún byrjaði að byggja upp lónið. Núna er staðan allt önnur. Kalli mætir til Matador-lands og sér að það er allt frekar dýrt og hugsar: Hefði ég kannski átt að bóka ferð til Olsen Olsen-lands?