158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

Störf þingsins.

[13:41]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Nú í byrjun september voru birt í samráðsgátt stjórnvalda áform um breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld (innheimta, tollar o.fl.), þar á meðal breytingu sem varðar tollflokkun rifins mozzarella-osts með viðbættum jurtaolíum sem notaður er við pítsugerð. Fyrirhuguð breyting beinist að vöruflokki sem hefur sætt ítarlegri meðferð hjá íslenskum tollyfirvöldum og öllum stigum dómstóla og hefur verulega þýðingu fyrir íslenska mjólkurframleiðslu eins og kunnugt er. Þá vekur það sérstaka athygli að samkvæmt áformaskjalinu er markmið áformaðs frumvarps m.a. að loka glufum, fækka undanþágum í skattkerfinu og auka skilvirkni í framkvæmd. Þetta eru ekkert annað en öfugmæli, frú forseti, því að þessi fyrirhugaða breyting á tollflokkum myndi fela í sér hið gagnstæða þar sem hún myndi skapa sérstaka undanþágu fyrir afmarkaðan vöruflokk sem hingað til hefur notið sömu tollmeðferðar og aðrar sambærilegar mjólkurafurðir og frekari glufur opnaðar. Þessi áform fjármálaráðherra Viðreisnar munu því óhjákvæmilega hafa mikil áhrif á íslenska mjólkurframleiðslu og afkomu kúabúa. En ég get upplýst Viðreisn um, sé henni ekki kunnugt um það, að mjólkurframleiðsla á sér stað á kúabúum á landsbyggðinni þar sem verðmætasköpun á sér stað og lífsviðurværi fjölda fjölskyldna í landinu, hún skiptir gríðarlegu máli. Það læðist að manni sá grunur að fyrirhuguð breyting muni fyrst og fremst þjóna sérhagsmunum fámenns hóps aðila. Nái breytingin fram að ganga yrðu sérhagsmunir örfárra innflytjenda matvæla teknir fram yfir almannahagsmuni sem felast m.a. í fæðuöryggi, innlendri verðmætasköpun, byggðafestu og framleiðslugetu landsins, auk þess sem þarna yrði skapað afar slæmt fordæmi. Hver er þá tilgangurinn? Það er von að maður velti því fyrir sér. (Forseti hringir.) Er tilgangurinn að herða enn frekar að landbúnaðarframleiðslu í landinu? Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar og þjónkun við tiltekna innflytjendur matvæla? Ég get upplýst þingheim um það að muni þetta frumvarp líta dagsins ljós, sem ég vona að það geri ekki, þá mun Miðflokkurinn taka til varna fyrir landbúnaðinn.