158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

Störf þingsins.

[13:46]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseti hefur orðið vör við það í máli þingmanna á undanförnum dögum að ekki er gerður greinarmunur á frumvörpum og lögum. Þetta er mikilvægur greinarmunur og hann er sá að á Alþingi eru frumvörp lögð fram og kallast frumvörp þangað til þau eru afgreidd og samþykkt sem lög. Þetta hefur komið fram í máli margra, bæði ráðherra og þingmanna, og við þurfum að gera þennan greinarmun af því að það er grundvallarmunur á frumvarpi og afgreiddum lögum frá Alþingi.