Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Flest viljum við góða heilbrigðisþjónustu, öfluga löggæslu og gott mennta-, vega- og velferðarkerfi. Við viljum að þessar stoðir samfélagsins virki og látum fljótt í okkur heyra þegar þær gera það ekki. Þetta þarf að hafa í huga í allri umræðu um skatta og gjöld. Þessir innviðir reka sig ekki sjálfir og þeir kosta mikla fjármuni. Það verður ekki bæði haldið og sleppt í þessum efnum.
Mér finnst líka áhugavert hvernig orðræðan hefur breyst. Stjórnmálaflokkar sem stóðu að síðustu ríkisstjórn töluðu gjarnan um gjöld, t.d. alls konar notkunargjöld, þegar þau voru hækkuð eða tekin upp. Nú er hins vegar iðulega talað um skattahækkanir og skattheimtu þegar gjöld hækka eða eru látin fylgja verðlagsþróun. Orðin skipta máli. Menntun, heilbrigðisþjónusta, vegir, löggæsla, réttarkerfið og aðrir innviði samfélagsins urðu ekki til úr engu. Fyrirtækin þurfa á þessu öllu að halda, ekki síður en einstaklingarnir. Öflugt samfélag, menntað fólk og fólk sem líður vel eru líka forsendur þess að hægt sé að reka fyrirtæki, skapa verðmæti og byggja upp auð.
Virðulegur forseti. Hvað sem öllum pólitískum ágreiningi líður erum við meira lík en ólík. Við komum öll nakin og algerlega ósjálfbjarga í heiminn og ekkert okkar yfirgefur þessa jarðvist með bankareikninginn í vasanum. Þegar þar að kemur skiptir litlu hversu mikið stendur inni á reikningnum en á meðan við erum hér getum við öll lagt okkar af mörkum eftir efnum og aðstæðum til samfélagsins sem við viljum að virki. Það er einfaldlega ekki bæði sleppt og haldið.