158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

Störf þingsins.

[13:53]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Tölum aðeins um fæðingarorlofsmál. Við sem samfélag eigum að vera þakklát fyrir að ungt fólk vilji eignast börn snemma á starfsævinni þegar fólk er kannski enn að koma sér fyrir, er enn á leigumarkaði eða nýlega komið inn í eigið húsnæði. En við vitum að það er ekki alltaf auðvelt. Ég er þakklát fyrir að búa í samfélagi þar sem stutt er við ungar fjölskyldur. Hér á landi er tryggður réttur til fæðingarorlofs í 12 mánuði. Það er vel. Í því landi sem ég ólst að stórum hluta upp í, Bandaríkjunum, telst nokkuð vel sloppið ef móðir nær fjórum mánuðum með barni sínu eftir fæðingu. Feður taka orlof í mýflugumynd, kannski í örfáar vikur, ef eitthvað. Þrátt fyrir að okkar kerfi sé um margt gott þarf að bæta það áfram. Það hefur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gert með hækkun á lágmarksgreiðslum, hækkun á fæðingarstyrk námsmanna og fólks utan vinnumarkaðar, lengra fæðingarorlofi fyrir fjölburaforeldra og mæður sem veikjast á meðgöngu og einnig er búið að tryggja að hækkun hámarksgreiðslna í fæðingarorlofi nái til allra foreldra óháð fæðingardegi barns. En betur má ef duga skal.

Hér á landi erum við með mjög sérstakar reglur þegar kemur að viðmiðunartímabili fæðingarorlofs. Mjög langur tími, eða um eitt og hálft ár, líður frá því tímabili sem Fæðingarorlofssjóður horfir á þegar hann ákveður hvaða tekjur eigi að vera til grundvallar úr sjóðnum þegar fólk eignast loksins barn eða tekur orlof. Frá því að barn kemur í heiminn geta liðið margir mánuðir, jafnvel ár, þangað til hitt foreldrið tekur eða fullnýtir orlofið sitt. Þetta kemur niður á ungu fólki, fólki sem er í námi og eignast svo barn, fólki sem ákveður að eignast barn snemma á starfsævinni og líka foreldrum sem eignast börn með stuttu millibili. Þess vegna hef ég lagt fram nú í annað sinn þingsályktunartillögu þess efnis að viðmiðunartímabili fæðingarorlofsgreiðslna verði breytt svo það endurspegli betur rauntekjur þeirra foreldra sem ráðast í það verkefni að eignast fjölskyldu. Ég vona að sú tillaga fái góðar undirtektir í þingsal.