Störf þingsins.
Frú forseti. Í þessari viku kemur sveitarstjórnarfólk alls staðar að af landinu saman á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga á Akureyri. Þetta er mikilvægt þing. Þar er ekki bara verið að ræða verkefni dagsins í dag heldur líka að móta áherslur sveitarfélaganna til næstu ára og ræða framtíð sveitarstjórnarstigsins til lengri tíma. Sú umræða skiptir okkur hér á Alþingi miklu máli. Sveitarfélög standa fólki næst og bera ábyrgð á stórum hluta þeirrar grunnþjónustu sem við treystum á alla daga. Þegar við ræðum um byggðastefnu snýst hún einmitt að stórum hluta um þetta: Getur fólk óháð búsetu treyst því að hafa aðgang að góðri grunnþjónustu? Í Norðausturkjördæmi þekkjum við vel hversu miklu máli samgöngur skipta í því sambandi. Góðar og öruggar samgöngur tengja saman byggðir, atvinnusvæði og þjónustu. Þær ráða miklu um aðgengi fólks að menntun og heilbrigðisþjónustu og möguleika fólks til að búa og starfa þar sem það kýs. Við þurfum því heildarsýn fyrir landsbyggðina. Þar þurfa ríki og sveitarfélög að vinna saman. Verkaskipting þarf að vera skýr, fjármögnun verkefna að fylgja ábyrgðinni og samtalið að vera raunverulegt.
Frú forseti. Landsþingið á Akureyri er mikilvægur vettvangur fyrir þetta samtal. Okkar verkefni á Alþingi er síðan að hlusta á það sem sveitarstjórnarfólkið hefur fram að færa, taka svo samtalið og vinna saman að raunhæfum og sanngjörnum leiðum því að öflug sveitarfélög og góð grunnþjónusta um allt land eru grunnur að öflugu samfélagi.