Störf þingsins.
Frú forseti. Fyrr á þessu ári voru samþykktar hér á Alþingi breytingar á lögum um sjúkratryggingar. Þar á meðal var breyting á 33. gr. laganna sem fólst í því að ríkið hætti greiðsluþátttöku vegna veikinda og slysa utan EES. Þessi breyting var útskýrð og rökstudd með þeim hætti að fólk gæti einfaldlega leitað til tryggingafélaga og keypt sér tryggingar í tengslum við slík ferðalög. Nú liggur fyrir að málið er kannski ekki alveg jafn einfalt og lagt var upp með þar sem tryggingafélögin tryggja almennt ekki fólk með undirliggjandi sjúkdóma og hafna slíkum umsóknum. Sá hópur stendur því frammi fyrir því að ef upp kemur alvarlegt heilsuatvik á ferðalagi utan EES-svæðisins, sem krefst þess t.d. að viðkomandi leggist inn á spítala, er engin trygging til staðar til að dekka þann kostnað sem af hlýst. Að óbreyttu hefði sá kostnaður lent á sjúklingunum sjálfum. Til að reyna að bjarga þessu máli var því sett reglugerð nú í sumar, reglugerð nr. 760/2026, þar sem kveðið er á um að ríkið stígi inn og reyni að mæta þessum hópi en þó þannig að skilið er eftir tiltekið hlutfall fyrir sjúklinginn sjálfan til að bera. Í 3. gr. reglugerðarinnar segir þannig að af kostnaði undir 75.000 kr. greiðir ríkið 50%, af kostnaði yfir 75.000 greiðir ríkið 75% og af kostnaði yfir tíu milljónum greiðist 90%. Í tilfelli lífeyrisþega er hlutfallið hærra. Gísli Jónasson, fyrrverandi prófastur og gjaldkeri MND-félagsins á Íslandi, hefur vakið athygli á þessu, bæði með því að senda okkur þingmönnum erindi en líka í fjölmiðlum. Samkvæmt útreikningum Gísla getur eigin áhætta í tilfelli langveiks lífeyrisþega orðið allt að 1.030.000 kr. og í tilfelli aðila sem ekki er lífeyrisþegi getur eigin áhætta orðið allt að 3–4 milljónir ef illa fer. Í þessu felst að fólk með undirliggjandi sjúkdóma stendur frammi fyrir þeirri áhættu að ef illa fer á ferðalagi, ef það þarf t.d. að fara í stóra bráðaaðgerð á sjúklingi, getur kostnaðurinn hlaupið á einhverjum milljónum. Við mig hafði samband móðir á dögunum sem á langveikt barn og hún sagði að það væri skrýtin tilfinning að ákvörðun um ferðalög, t.d. til Bandaríkjanna, væri orðin að einhvers konar risastóru fjárhagslegu áhættuspili fyrir fjölskylduna. (Forseti hringir.)
Virðulegur forseti. Ég hef sett fram skriflega fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra af þessum sökum og hvet hana til að skoða þetta mál vel og vandlega.