Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það er óhætt að segja að landsbyggðin eigi undir högg að sækja. Það er svo sem ekkert nýtt að landsbyggðin þurfi að berjast fyrir tilverurétti sínum, berjast fyrir því að halda fólki og berjast fyrir því að fá fyrirtæki til að setjast að og byggja upp starfsstöðvar sínar utan höfuðborgarsvæðisins. Þetta staðfestist í tölum um íbúafjölda á landsbyggðinni í samanburði við íbúafjölda á höfuðborgarsvæðinu. Byggðastefna er fallegt orð sem notað er á tyllidögum og oft hér í þinginu. Hvað höfum við oft heyrt það í þessum sal að það þurfi að efla landsbyggðina? Allt þetta sögðu ríkisstjórnarflokkarnir fyrir síðustu kosningar.
En hverjar eru efndirnar, virðulegur forseti? Loforð gefin, loforð efnd. Í umræðum um veiðigjöld, vörugjöld og kílómetragjald var lofað rúmlega 18 milljörðum í vegabætur á landsbyggðinni. Niðurstaðan nú í fjárlagafrumvarpinu er 3–4 milljarða kr. niðurskurður í samgöngumálum. Það er búið að taka sýslumanninn, heilbrigðiseftirlitið, skerða starfsemi Vinnumálastofnunar á landsbyggðinni og gerð var atlaga að því að segja upp skólameisturum framhaldsskólanna, sem betur fer var hún stöðvuð. Boðað hefur verið frumvarp til þess að fækka lögreglustjórum og sameina embætti. Þá má nefna glórulausa hækkun vöruflutninga í formi 7,2 milljarða hækkunar á kílómetragjaldi. 4 milljarða hækkun í ár mun hækka kostnað á stóran trailer-bíl um 27% eða um tæpa 1 millj. kr. á ári. Þetta er kostnaður sem mun lenda á íbúum landsbyggðarinnar í hærra vöruverði og hærri flutningskostnaði fyrirtækja á landsbyggðinni. Allt þetta hefur verið gagnrýnt, m.a. af þingmönnum landsbyggðarkjördæmanna. (Forseti hringir.) Hvað er þá næst? Jú, fækka þingmönnum landsbyggðarinnar, fækka kjörnum fulltrúum landsbyggðarinnar á Alþingi Íslendinga, að öllum öðrum ólöstuðum, þeim þingmönnum (Forseti hringir.) sem hafa barist hvað harðast fyrir hagsmunum einmitt landsbyggðarinnar.
Virðulegur forseti. Nú er mál að linni. Ef það er markmið ríkisstjórnarinnar að gera Ísland að borgríki á suðvesturhorninu (Forseti hringir.) þá er ríkisstjórnin á réttri leið.