158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[14:11]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026–2029. Tillagan er lögð fram í samræmi við 7. gr. laga um málefni innflytjenda þar sem kveðið er á um að ráðherra skuli leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda til fjögurra ára í senn að fenginni umsögn annarra ráðuneyta, stofnana, Vinnumálastofnunar og innflytjendaráðs. Tillagan var fyrst lögð fram á 157. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Tillagan er því lögð fram að nýju í óbreyttri mynd.

Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026–2029 byggir á ítarlegu stöðumati og greiningu á brýnustu aðgerðum til að ná fram þeim markmiðum sem lög um málefni innflytjenda kveða á um. Staða í málefnum innflytjenda var metin og birti grænbók í málefnum innflytjenda og flóttafólks í nóvember 2023. Henni var svo fylgt eftir með hvítbók í maí 2024. Samhliða framkvæmdi Efnahags- og framfarastofnunin úttekt um innflytjendur á Íslandi sem birt var þann 4. september sama ár.

Við mótun aðgerða í tillögunni sem hér er lögð fram var byggt á framangreindri vinnu auk annarra gagna, m.a. ríkulegu samtali við innflytjendur sjálfa um þarfir þeirra og tækifæri hér á landi. Í áætluninni er kveðið á um verkefni sem hafa það að markmiði að stuðla að samfélagi þar sem allir einstaklingar geti verið virkir þátttakendur, óháð þjóðerni og uppruna. Drög að tillögu til þingsályktunar voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í febrúar 2026 og bárust alls tíu umsagnir um tillögurnar sem teknar voru til skoðunar við lokavinnslu tillögunnar.

Virðulegi forseti. Þingsályktunartillaga um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026–2029 byggir á fimm stoðum sem samtals fela í sér 24 aðgerðir. Fyrsta stoðin er íslenskunám og notkun tungumálsins í daglegu lífi. Lögð er áhersla á að færni í íslensku sé lykill að samfélaginu en ekki síður að samfélagið sé lykillinn að íslenskunni sjálfri. Þar er að finna aðgerðir sem snúa að námi, kennslu og notkun íslensku sem samskiptamáls. Aðgerðunum er ætlað að tryggja að aðgengilegt, sveigjanlegt og vandað íslenskunám sé í boði um land allt. Jafnframt er lögð áhersla á að sýndur sé skilningur gagnvart þeim sem eru að læra íslensku, að samfélagið styðji við nýja íslenska notendur og skapi þeim tækifæri til að nota tungumálið. Sem dæmi um aðgerðir má nefna aðgerð í kafla 1.1. um að íslenskunám verði gert fjölbreytt og markvisst fyrir alla. Aðgerðin felur í sér að stjórnvöld skýri hvaða kröfur innflytjendur þurfi að uppfylla til að ljúka námskeiðum. Jafnframt verður framsetning útskriftarskjala samræmd til að atvinnulífið fái skýra mynd af íslenskuhæfni þeirra sem lokið hafa námskeiðum. Innleidd verða stöðupróf í íslensku sem meta með áreiðanlegum hætti færnistig, líkt og gert er í öðrum löndum. Aðgengi að starfstengdri íslenskufærni verður aukið svo að fólk geti lært og æft íslenskt mál sem mest á vinnutíma.

Í annarri stoðinni, um mat á námi og þátttöku á vinnumarkaði, er að finna aðgerðir sem miða að því að styrkja stöðu innflytjenda á íslenskum vinnumarkaði og nýta þekkingu þeirra og fyrri reynslu samfélaginu til heilla. Lögð er áhersla á mat á menntun og starfsreynslu til starfsréttinda hér á landi. Einnig er lögð áhersla á virkni og aukin tækifæri á vinnumarkaði, auk fræðslu um réttindi og skyldur þar að lútandi. Sem dæmi má nefna aðgerð 2.3., virkni og tækifæri á vinnumarkaði. Þar mun Vinnumálastofnun styðja sérstaklega við læsi og eflingu grunnfærni þeirra innflytjenda sem þess þurfa með samfélagslegri og starfstengdri fræðslu sem miðar að aukinni þátttöku á vinnumarkaði og verður m.a. boðið upp á fræðslu um réttindi, skyldur og vinnustaðamenningu á íslenskum vinnumarkaði.

Í stoð um upplýsingaþjónustu, samfélagsfræðslu og þátttöku er að finna aðgerðir sem miða að því að efla upplýsingaþjónustu og samfélagsfræðslu fyrir innflytjendur. Jafnframt er lögð áhersla á fræðslu um menningarnæmi og þann samfélagslega ávinning sem felst í jafnri stöðu íbúa, óháð uppruna. Sem dæmi um aðgerðir má nefna aðgerð 3.4., þátttaka barna og ungmenna í íþrótta- og æskulýðsstarfi og öðru tómstundastarfi. Við ætlum að innleiða verkferla sem hafa gefið góða reynslu erlendis til að efla og auka þátttöku erlendra barna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi, enda er það lykilatriði í inngildingu að börn umgangist jafnaldra sína með reglubundnum hætti. Slíkt kemur jafnframt í veg fyrir félagslega einangrun og óæskilega hópamyndun.

Fjórða stoðin fjallar um sérstaklega viðkvæma hópa. Þar er að finna aðgerðir með áherslu á félagslegt öryggi og velferð og stuðning við þá hópa innflytjenda sem standa höllum fæti. Sérstaklega er litið til þess að draga úr fátækt meðal innflytjenda. Þá er lögð áhersla á að stuðningur við flóttafólk stuðli að því að fólk nái rótfestu í nýju samfélagi og efldur verði sálrænn stuðningur og meðferð við áfallastreituröskun. Gott dæmi um aðgerðir fyrir viðkvæma hópa er samspil aðgerða sem snúa að geðheilbrigðismálum og sálrænum stuðningi. Þar munu mitt ráðuneyti og heilbrigðisráðuneytið snúa bökum saman í að vinna að bættu aðgengi að gagnreyndri meðferð við áfallastreituröskun og á sama tíma efla sálrænan stuðning við þá sem ekki eru svo illa staddir að hafa þróað með sér áfallastreituröskun en glíma engu að síður við erfiða reynslu í kjölfar áfalla.

Fimmta og síðasta stoðin snýr að tölfræði og rannsóknum. Þar er að finna aðgerðir sem miða að því að efla söfnun, miðlun og birtingu hagtalna um innflytjendur. Jafnframt er lögð áhersla á miðlun þekkingar og hagnýtingu rannsókna á sviði innflytjendamála. Sem dæmi má nefna aðgerð um að bæta aðgengi að tölfræði um innflytjendur. Til stendur að skilgreina úrbótatækifæri og bæta opinber gagnasöfn og birtingu þeirra svo að gögnin verði tímanleg og samanburðarhæf. Þessi aðgerð svarar einum af helstu ráðleggingum OECD til íslenskra stjórnvalda og mun leggja traustan grunn að allri stefnumótun og eftirfylgni markmiða í málefnum innflytjenda.

Virðulegur forseti. Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir hröðum lýðfræðilegum breytingum þar sem hlutfall innflytjenda af heildaríbúafjölda hefur vaxið hraðar en í nokkru öðru aðildarríki OECD. Það hefur í för með sér bæði áskoranir og tækifæri á ólíkum sviðum og er markmið framkvæmdaáætlunarinnar, sem ég hef hér gert grein fyrir, að samhæfa aðgerðir í ólíkum málaflokkum og tryggja þannig sem bestan stuðning, jafnt við innflytjendur sjálfa sem þá innviði sem þarf til að efla inngildandi samfélag.

Ríkisstjórnin hefur sett sér það markmið að efla íslenskukennslu fyrir þau sem hingað flytja. Við vitum að tungumálið er lykillinn að inngildingu og höfum þess vegna lagt áherslu á íslensku í þessari aðgerðaáætlun. Ég vil hvetja samfélagið allt til að taka þátt í þessu sameiginlega verkefni, enda tekst það ekki nema allir leggi hönd á plóg. Ég tel aðgerðaáætlunina í senn vera metnaðarfulla og raunhæfa en rétt er að nefna að kostnaðurinn við þær aðgerðir sem ég hef hér kynnt rúmast innan fjárheimilda. Ég bind miklar vonir við að þingmenn sameinist um þær aðgerðir sem hér eru lagðar til og að málið fái góða og vandaða meðferð hjá þinginu.

Að lokum legg ég til að þessari tillögu til þingsályktunar verði vísað til hv. velferðarnefndar að lokinni þessari umræðu.