158. löggjafarþing — 10. fundur, 22. sept. 2026.
framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.
102. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Varðandi endanlega útfærslu á því hvernig gagnaöflun á sér stað þá er það í vinnslu. Sú vinna mun fara á fullt þegar aðgerðaáætlun verður samþykkt með þeim athugasemdum sem verða væntanlega í þinglegri meðferð. Ég hef ekki upplýsingar um gagnaöflun sem tengist afbrotum í dómsmálaráðuneytinu og get ekki svarað fyrir það.