158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[14:23]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari spurninguna. Það er skýrt markmið ríkisstjórnarinnar með þessari áætlun að setja aukinn kraft í inngildingu og hluti af inngildingu í íslensku samfélagi er bæði lýðræðisleg þátttaka og bara almenn þátttaka. Það er lykillinn að því að við náum að byggja hér upp samfélag. Samfélagið hefur auðvitað breyst mjög mikið síðustu árin. Árið 2015 var fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda í kringum 30.000 en er um 85.000 í dag, tíu árum seinna. Við erum með gjörbreytt samfélag og samsetningu á samfélagi og þurfum auðvitað að bregðast við því. Ef við ætlum að standa okkur vel og halda áfram að byggja upp gott samfélag þá er hluti af inngildingu lýðræðisleg þátttaka sem og annað, bara þátttaka í íslensku samfélagi.