158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[14:24]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka ráðherra fyrir framsöguna. Nokkrir hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að stofnað verði umrætt mælaborð í málefnum innflytjenda. Dönsk stjórnvöld hafa til að mynda komið upp opinberu mælaborði sem mælir m.a. atvinnuþátttöku, menntun, dönskukunnáttu, opinbera framfærslu, glæpatíðni o.s.frv. Er þetta mælaborð gert með það í huga að meta árangur af aðlögun innflytjenda að dönsku samfélagi. Það væri mikið heillaskref ef þetta kæmi á Íslandi og almenningur hefði aðgang að því. Ég fæ t.d. ekki séð að einhver aðgerð sé tileinkuð þessu mælaborði í því máli sem liggur fyrir, framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026–2029. Ætlar ráðherra að leggja áherslu á þetta eða hvernig tekur hann almennt í þessa hugmynd?