158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[14:25]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Eins og kemur fram í aðgerðaáætluninni þá er hluti af þessari vinnu gagnaöflun, samkeyrsla gagna, eins og m.a. frá Hagstofunni, Útlendingastofnun og fleiri stofnunum sem halda utan um hagtölur. Við getum kallað samkeyrslu gagna ákveðið mælaborð. Hins vegar er tilvalið einmitt í þinglegri meðferð og á vettvangi velferðarnefndar að koma með tillögur að breytingum sem einstakir flokkar eða þingmenn hafa áhuga á að koma inn.