framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir góð svör og ánægjulegt að heyra að mögulega séu hlutirnir að hreyfast hér eitthvað, alla vega meira en áður var, því það skiptir máli. Það sem kannski er líka alvarlegt í þessu máli er að eitt er auðvitað að sveitarfélagið skuli skilið eftir með allan þennan hóp af fólki og í rauninni sett gríðarlegt fjárhagslegt álag á sveitarfélagið en hitt er líka hvernig þessu fólki mun reiða af því það skiptir auðvitað líka máli. Þarna eru börn og gamalmenni sem eru þá ekki kannski að njóta þeirrar þjónustu sem eðlilegt væri að væri fyrir hendi þannig að ég vil bara skora á ráðherrann og hvetja hann til góðra verka í þessum efnum og að finna lausn á þessu. Ég ætla bara að minna ráðherrann á eitt: Það er auðvitað ekki ásættanlegt, af því að ríkið er ekki að bera neitt fjárhagslegt tjón af málinu á meðan það er hjá sveitarfélögunum, að það verði á einhvern hátt til þess að letja ráðuneytið í því að finna niðurstöðu í málinu. Það skiptir gríðarlega miklu máli að ráðuneytið taki þetta alvarlega.