158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[14:32]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða brýningu, myndi ég frekar segja en spurningu, en ég bara tek undir áhyggjur þingmannsins og deili þeim. Þetta er mjög flókin staða sem hefur skapast uppi á Bifröst og ekki einfalt mál að leysa þetta. Það er margt sem við vitum í stöðunni og margt sem við þurfum að glíma við. Ég get hins vegar fullvissað hv. þingmann um að við tökum málið mjög alvarlega og erum að taka það mjög föstum tökum til að leysa úr málum, ekki bara fyrir sveitarfélagið heldur líka þá einstaklinga sem þar dvelja við miður góðar aðstæður.