158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[14:33]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans yfirferð. Þetta er svo sannarlega mikilvægt og spennandi mál til að takast á við áfram hér í vetur. Það er ánægjulegt að íslenskunám sé efst á blaði, að það verði gert fjölbreytt og markvisst fyrir alla. Það er náttúrlega það brýnasta í þessu. Ég tók eftir því að íslenska sem samskiptamál er líka ofarlega á blaði. Mig langar til að fá aðeins fram frá hæstv. ráðherra, af því að nú eru margir hlutir að breytast mjög hratt og hafa breyst mjög hratt á undanförnum áratug varðandi fjölda fólks í landinu og í tilteknum sveitarfélögum og skólum og þar fram eftir götunum. Margir hafa lagt mikinn metnað í það, sveitarfélög og aðrir, að þýða á ensku, pólsku, jafnvel arabísku, alls kyns fréttir sem birtast á heimasíðum sveitarfélaga. Telur hæstv. ráðherra að við höfum kannski verið á rangri leið þar, að við ættum að leggja enn meiri áherslu á að íslenska er samskiptamálið?