158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[14:51]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem var þríþætt og ég get reynt að rekja mig í gegnum sjónarmiðin. Í sambandi við hina pólitísku klisju um að fjölbreytileiki sé í eðli sínu styrkur og hvort rannsóknir vinstri sinnaðra háskólamanna komist að þeirri niðurstöðu, þegar lagt er upp með að komast að slíkri niðurstöðu, að fjölbreytileiki í ákveðnum skilningi, eins og þjónaði hagsmunum þeirrar rannsóknar, geti verið styrkur. Nú er ég auðvitað að mála þetta upp í mjög svona kannski einhlítri mynd, að þessi niðurstaða sé sú sem kemur upp úr svona vinnu. Í raun og veru er það miklu meira praktískur veruleiki lífsins sem maður myndi benda á frekar en rannsóknir, sem geta verið gerðar undir alls konar formerkjum, eins og ég segi, komast að niðurstöðu um.

Ef við horfum bara á þjóðfélag, þegar fjölbreytileiki, eins og hann er skilgreindur í þessu tilviki — vegna þess að ég er alveg sammála því, eins og hv. þingmaður nefnir, að fjölbreyttir hópar geti unnið að einhverri niðurstöðu. En hvers konar fjölbreytileika erum við þá að tala um? Auðvitað erum við sem mannfólk, og erum nú þegar sem íslenskt samfélag, mjög fjölbreytt samfélag. En ég er að tala um þessa nýju pólitísku hugmynd um fjölbreytileika, að það eigi að vera fjölbreyttur þjóðernisuppruni til dæmis, sem er verið að tala um hérna, að það sé ákveðinn styrkur.

Í fyrsta lagi veit ég ekki hvort þessar rannsóknir komast endilega að þeirri niðurstöðu sem hv. þingmaður vísar til. En í öðru lagi sér maður bara að það eru aðrar rannsóknir, held ég, sem geta sannarlega sýnt fram á að þegar það kemur meiri fjölbreytileiki í samfélög þá dregst líka saman ákveðið samfélagslegt traust, ákveðin samfélagsleg samheldni. Það eru ýmsir kostir sem einsleit lítil samfélög hafa sem fjölbreyttari stærri samfélög hafa alls ekki. Ég veit að það má vafalaust finna rannsóknir sem renna stoðum undir þetta en ég þarf engar rannsóknir til þess, maður bara sér það og finnur það. Maður finnur að samfélög breytast (Forseti hringir.) eftir því sem innflytjendastefnan er róttækari. (Forseti hringir.) Þannig að ég furða mig að vissu leyti á því að hv. þingmaður Samfylkingarinnar taki ekki undir þessi sjónarmið mín en vilji berjast við þetta áfram. (Forseti hringir.) Ég lauma þeirri spurningu að hvort hv. þingmaður Samfylkingarinnar leggist gegn svona mælaborði um glæpatíðni eins og vísað var til.

(Forseti (EÁs): Forseti minnir hv. þingmann á að ræðutími er tvær mínútur undir þessum lið.)