framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, Ragnari Þór Ingólfssyni, fyrir að leggja fram þessa aðgerðaáætlun. Ég hef verið innflytjandi í öðru ríki, flutti sex ára til Bandaríkjanna og þar blasti við mér ákveðið kerfi. Maður fylltist auðvitað ákveðnu óöryggi sem sex ára barn, búin með leikskóla á Íslandi en ekki grunnskóla og hóf grunnskólagöngu mína í Bandaríkjunum þar sem ég kunni þrjú orð, með leyfi forseta: „Yes“, „no“, og svo var ég alltaf að reyna að læra orðið „strawberry“, eða jarðarber; uppáhaldsávöxturinn minn. Þetta óöryggi hvarf fljótt vegna þess að þar tók við mér enska sem annað mál eða á ensku, með leyfi forseta, „ESL“, og á einu ári varð ég altalandi á ensku og nýt góðs af því í dag.
Svo var aftur á móti annað mál þegar sú sem hér stendur flutti aftur til Íslands 15 ára gömul og átti hreinlega erfitt með að beygja orð á íslensku vegna þess að þetta er erfitt tungumál. Við erum ekki að gera neinum neinn greiða hér með því að leggja ekki áherslu á að taka á móti bæði börnum og fullorðnum sem hingað koma og aðstoða þau við að læra tungumálið. Það er ekki auðvelt að vera innflytjandi staddur í nýju landi, hvort sem maður er barn eða fullorðinn, og þurfa að læra heilt tungumál upp á nýtt en það er auðvitað hægt. Það er mín afstaða að auðvitað er það hlutverk ríkisins, ef við viljum að hér aðlagist fólk íslensku samfélagi, að fólk sé hluti af okkar samfélagi, tali okkar tungumál — já, við eigum að gera kröfu til fólks sem hingað kemur en við eigum líka að gera það sem við getum til þess að hjálpa fólki að aðlagast samfélaginu.
Í þessari aðgerðaáætlun er gert ráð fyrir að u.þ.b. 4 milljarðar renni í þær aðgerðir sem farið var yfir hér á undan af hæstv. ráðherra á fjórum árum. Það er sirka milljarður á ári. Það eru ekki stórar upphæðir. Í t.d. Finnlandi, sem er eitt af okkar samanburðarríkjum, eru 26 sinnum fleiri ókeypis kennslustundir í finnsku fyrir innflytjendur. Ég verð að segja að mér hefur þótt það öll þessi ár síðan ég flutti til Íslands 15 ára gömul að við getum staðið okkur betur þegar kemur að því að taka á móti innflytjendum. Það var erfitt fyrir mig, sem fæddist á Íslandi, bjó hér í sex ár áður en ég fluttist til Bandaríkjanna, að læra íslensku. Ég þurfti að leggja mjög hart að mér og gerði það. Einhverjum kann að hafa fundist það skrýtið að vera að læra heima allan júlímánuð til að reyna að geta talað við bekkjarsystkini mín án þess að beygja tungumálið vitlaust. Það var erfitt fyrir mig þannig að ég get ímyndað mér að það sé enn þá erfiðara fyrir þau sem ekki hafa þennan grundvöll og hafa ekki notið þeirra forréttinda að hafa fæðst hér á Íslandi. Já, ég held að það sé erfiðara fyrir þá einstaklinga að læra íslensku án aðstoðar eða með minni háttar aðstoð.
Ég held að síðustu ár og áratugi hefðum við átt að vera búin að innleiða sams konar aðgerðaáætlun. Ég held að við hefðum átt að setja miklu meiri fjármuni í það fyrr að efla t.d. íslenskukennslu. Hér í þessari aðgerðaáætlun fara 63% af áætluðum kostnaði af þessum 4 milljörðum einmitt í þetta, íslenskunám og notkun íslensku. Þetta er langstærsti liðurinn í þessari aðgerðaáætlun. Mér finnst það ekki vera risaríkisbákn. Mér finnst það vera góð ráðstöfun. Hún mætti vera enn þá meiri. Ég fagna því innilega að þessi aðgerðaáætlun sé komin fram. Ég vona að við hér á Alþingi Íslendinga berum gæfu til að samþykkja þessa aðgerðaáætlun þvert á flokka vegna þess að þetta er hluti af því sem við getum jú gert. Auðvitað þurfa einstaklingar sem hingað koma að leggja mikið á sig til að aðlagast íslensku samfélagi en það er okkar hlutverk — það er alla vega mitt mat og ég horfi á það þannig — sem erum í stjórnmálum að auðvelda fólki það. Ef við búumst við því að einstaklingar sem hingað koma aðlagist samfélaginu og lúti reglum samfélagsins þá finnst mér við líka verða að taka þátt í því og auðvelda fólki að taka þátt í þessu samfélagi.