158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[15:07]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni Snorra Mássyni fyrir andsvarið og spurninguna. Nei, ég get ekki sagt að ég leggist gegn slíkri birtingu upplýsinga og, eins og hv. þm. Ingveldur Anna Sigurðardóttir kom jafnframt inn á í sínu andsvari við hæstv. ráðherra, sérstaklega í því samhengi að um sé að ræða mælaborð með ýmsum þáttum, t.d. glæpatíðni, atvinnuþátttöku og fleiri atriðum sem í raun og veru mæla inngildingu heildstætt. Ég get ekki lagst gegn þannig upplýsingaöflun. Ég held að auðvitað séu slíkar upplýsingar af hinu góða og það verður áhugavert að ræða um slíkar hugmyndir í hv. velferðarnefnd. Auðvitað er það hluti af aðgerðaáætluninni að safna einmitt tölfræðiupplýsingum og setja þær fram. Auðvitað þurfum við að vera með mælanlegan árangur og ég tek sannarlega undir það að ef við setjum fram markmið, eins og er oft gert í svona þingsályktunartillögum eða aðgerðaáætlunum, þá verðum við með einhverjum hætti að geta mælt þær. Þannig að ég leggst ekki gegn slíkri upplýsingasöfnun. En ég gerði kannski athugasemd við að hv. þingmaður, að mér fannst, rauk beint í að tengja þennan málaflokk við glæpatíðni. Það var það sem ég gerði athugasemd við og það var svona það helsta sem kom fram, fannst mér, í fyrra andsvari hv. þingmanns.