framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Ég er nú ekkert að setja spurningarmerki við góðmennsku hv. þingmanns, það er ekki ætlun mín hér. En auðvitað slær það mann stundum, og það er alveg þannig og hefur verið fjallað um það töluvert, að því er oft slegið upp t.d. í fjölmiðlum og sett fram einhver tengsl og gefin svona ákveðin mynd af upprunalandi fólks og glæpatíðni. En varðandi mælaborð og upplýsingasöfnun þar að lútandi: Nei, ég set mig ekki upp á móti því, til að svara spurningu hv. þingmanns. En varðandi það að íslenskt samfélag lagi sig ekki að einstaklingum sem hingað koma þá lít ég ekki svo á, til að mynda í þessari aðgerðaáætlun þar sem verið er að setja fjármagn, og meiri hluta þess fjármagns sem áætlað er í aðgerðaáætlunina, í íslenskukennslu sem dæmi, að við séum að aðlagast innflytjendum. Ég lít á það sem svo að við séum að auðvelda fólki að aðlagast íslensku samfélagi. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við gerum það, sérstaklega ef við erum með ákveðnar kröfur til íslenskukunnáttu o.s.frv. Varðandi fjöldann sem hingað hefur komið, auðvitað tengist það atvinnustefnu í því hvernig við byggjum hér upp iðnað, innviði o.s.frv. Ég er ekki sammála því að það eigi að segja upp EES-samningnum eða eitthvað slíkt til þess að stemma stigu við því. Ég held að við getum fyrst og fremst staðið okkur betur í því að aðstoða fólk við að komast inn í samfélagið og aðlagast samfélaginu. En þessi ríkisstjórn hefur vissulega gert margt til þess að ná tökum á (Forseti hringir.) t.d. þeim mun sem hefur verið á Íslandi og öðrum Norðurlöndum, sem dæmi, (Forseti hringir.) þegar kemur að umsóknum um alþjóðlega vernd. Það er mér mjög mikilvægt að við tryggjum réttindi fólks, mannréttindi, (Forseti hringir.) en að við séum líka í samræmi við önnur samstarfsríki þegar kemur að því.