158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[15:26]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég fagna hverjum þeim sem vill læra íslensku og mér finnst eðlilegt að við styðjum slíka kennslu. Við gerum það reyndar nú þegar, en það má vel vera að það geti komið að gagni að auka við þann stuðning. Þó þarf að hafa í huga að það er ekki alltaf samasemmerki milli árangurs og fjármagns sem sett er í hlutina eins og grunnskólakerfið okkar sýnir. Við þurfum líka að velta því fyrir okkur hvernig er hægt að fjármagna nýtt og til hvers það er ætlað. Er það ætlað til þess að inngilda, eins og það er kallað, fólk sem hefur engan áhuga á því að læra íslensku og mun ekki mæta í þessa tíma og vill ekkert með þetta gera eða er því ætlað að koma til móts við þá sem raunverulega hafa áhuga á því að læra tungumálið. Með öðrum orðum: Okkur hættir svolítið til hér á Alþingi að meta viljann og væntan árangur út frá peningunum sem settir eru í hlutina en ekki út frá aðferðunum sem kynntar eru eða hvernig eigi að nýta þessa peninga.

Hv. þingmaður nefndi hér áðan reynslu sína af því að hafa flust til Bandaríkjanna sem barn. Það gerði ég líka, flutti þangað á svipuðum aldri og hv. þingmaður og kunni ekki ensku og fór í skóla. Ég fór ekki inn í neitt prógramm fyrir Íslendinga, ég fékk ekki aðstoðarkennara sem talaði við mig á íslensku. Manni var svona nokkurn veginn hrint út í laugina og þurfti að synda. Þetta er eitt af því sem við þurfum að velta fyrir okkur þegar við erum að tala um að setja t.d. aukið fjármagn í tungumálakennslu en við erum á sama tíma að setja gríðarlega peninga í að þýða allt yfir á hin ýmsu tungumál, arabísku og hin ýmsu tungumál, og ráða túlka, veita fólki rétt á túlkaþjónustu við alls konar aðstæður og jafnvel fjarlægja þannig hvatann til að læra tungumálið.