158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[15:28]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið við andsvarinu og gaman að heyra að hv. þingmaður hafi þessa reynslu líka. Ég vissi það ekki. Við eigum þetta sameiginlegt. Ég vil taka fram að sú sem hér stendur var ekki í enskukennslu fyrir Íslendinga heldur bara fyrir öll börn með annað móðurmál en ensku. En hvað um það. Ég tek undir með hv. þingmanni varðandi mikilvægi þess að mæla árangur og að meta það hvort fjármagn sem fer í eitthvað skili sér. Ég held að það sé mikilvægt í þessari aðgerðaáætlun sem og öðrum að við séum með mælanlegan árangur eða mælikvarða sem segja til um hvort að þessar aðgerðir og þetta fjármagn skili sér. Ég held því að við getum verið sammála um þetta, ég og hv. þingmaður.

Varðandi atvinnuþátttöku, af því að hv. þingmaður kom inn á það í ræðu sinni, að einhverjir sem hingað koma taki ekki þátt á atvinnumarkaði, þá kom áhugaverð skýrsla út fyrir ári síðan frá Alþýðusambandi Íslands eða könnun sem var gerð sem sýndi fram á það að atvinnuþátttaka var reyndar meiri, alla vega samkvæmt þessari könnun, á meðal innflytjenda en innfæddra Íslendinga. Þannig að mig langaði að spyrja hv. þingmann hvað honum fyndist um aðgerðirnar í aðgerðaáætlun varðandi vinnumarkaðinn, hvort hann styddi þær eður ei.