framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Áður en ég sný mér að einstökum liðum þessarar áætlunar, eins og ég nefndi m.a. í svari við andsvari hv. þm. Rögnu Sigurðardóttur, þarf ég að klára aðeins að fara yfir málið í heild og hvernig þetta blasir við í heild. Það sem veldur mér mestum áhyggjum við þetta mál og vonbrigðum er, eins og ég gat aðeins um hérna í fyrri ræðu en ætla að útskýra nánar, að það tekur ekki á vandanum. Það leitast við að finna leiðir til að lifa með vandanum og þannig á vissan hátt laga samfélagið að vandanum. Þetta hafa verið viðbrögð íslenskra stjórnvalda alveg frá því að fór að bera á þessari þróun, þessari gríðarlega hröðu þróun útlendinga hér, og það má ekki vanmeta hversu mikil áhrif það hefur haft. En viðbrögðin hafa eiginlega verið þau að finna leiðir til þess að lifa við það ástand og um leið hefur það þá aukið á hvatann til þess að þróunin haldi áfram með þessum hætti. Ég minnist þess til að mynda þegar rætt var um það, og kynnt áform um það af hálfu ríkisstjórnar, að breyta atvinnuhúsnæði, iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði, í dvalarstaði fyrir hælisleitendur, allt sem sagt til að vinna með vandann og lifa með honum en ekki að taka á honum og mér finnst þessi áætlun svolítið brennd því marki líka.
Þetta er vissulega vandi og meiri vandi á Íslandi en mjög víða annars staðar. Á örfáum árum hefur það gerst, á örfáum árum hefur hlutfall útlendinga hér aukist svo hratt að við erum að komast í hóp þeirra landa Evrópu þar sem hlutfall erlendra ríkisborgara, ef við teljum ekki fólk af erlendum uppruna, er hvað allra hæst. Þetta hefur auðvitað áhrif á samfélagið allt og kallar á viðbrögð stjórnvalda. Það má vel færa fyrir því rök að ekkert mál sé eins stórt og þetta, að ekkert mál kalli á eins afgerandi og snögg viðbrögð og þessi vandi því öll hin málin verða fyrir svo gríðarlegum áhrifum af stjórnleysinu á landamærunum og stjórnleysinu í útlendingamálum. Heilbrigðiskerfið: Vandi heilbrigðiskerfisins liggur ekki hvað síst í því að það hefur fjölgað á örfáum árum alveg gríðarlega, fólki með kannski flóknari þarfir að ýmsu leyti eða a.m.k. önnur tungumál og í þörf fyrir meiri þjónustu en íslenskir sjúklingar. Sama á við um skólana, eins og ég nefndi áðan, og það sama á við um húsnæðismarkaðinn. Það væri enginn húsnæðisskortur á Íslandi ef ekki væri fyrir þetta gríðarlega aðstreymi fólks því að Íslendingum hefur fjölgað sáralítið. Með öðrum orðum hefur þetta óhemjuáhrif á samfélagið allt og efnahag ríkisins og þess vegna ætti það að vera forgangsatriði að taka á þessu frekar en að búa til framkvæmdaáætlun til næstu ára sem miðar bara að því að halda einhvern veginn í horfinu og fást við afleiðingarnar af þessu í staðinn fyrir að taka á rót vandans með skýrri stefnu. Þess í stað er það þessi nálgun, þetta fjölmenningartal, þó að Evrópuþjóðir margar hverjar hafi hætt notkun slíkra hugtaka eftir að það kom í ljós, eins og meira að segja Angela Merkel, Tony Blair, David Cameron og fleiri leiðtogar Evrópuríkja viðurkenndu, að hugmyndin um fjölmenningarsamfélagið hefði ekki gengið upp. En hér skýtur þetta aftur upp kollinum með endalausu tali um inngildingu þegar það eina sem getur raunverulega virkað til að taka á móti nýjum landsmönnum, nýjum íbúum, er aðlögun þeirra og vilji til að taka þátt í samfélaginu og leggja sitt af mörkum þar. Þetta tekur ekki nægilega á því að mínu mati, herra forseti. — Tími minn er víst á þrotum og ég mun þurfa að fara í einstaka liði í næstu umræðu.