framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður talar um að vinna og lifa með vandanum. Nú er það svo að erlent vinnuafl hefur að mestu haldið uppi grunnþjónustu hér á landi. Ef við skoðum atvinnugreinar eins og ferðaþjónustuna, til að mynda, hún hélt uppi hagkerfinu yfir ákveðinn tíma og vöxt hennar, atvinnugrein sem er mikið haldið uppi af erlendu vinnuafli sem telur nú um 25% af vinnuafli á landinu. Við getum farið í ræstingar, umönnunarstörf og fleiri störf sem okkur hefur ekki tekist að manna. Ég velti því fyrir mér að þessi andstaða Miðflokksins við nánast öll mál sem koma frá ríkisstjórninni og stjórnarmeirihlutanum varðandi ýmsar tiltektir í útlendingamálum og sömuleiðis líka leiðir til að inngilda fólk að íslensku samfélagi, ekki öfugt, og sömuleiðis líka leiðir til að styrkja stöðu fólks af erlendum uppruna á vinnumarkaði þar sem tungumálakunnátta eða -kunnáttuleysi hefur t.d. verið ákveðin hindrun fyrir því að fólk geti komið og unnið önnur störf, jafnvel störf sem það hefur fengið menntun til, t.d. eins og í heilbrigðisgeiranum, að þau verði metin.
Ég sakna þess svolítið í allri þessari gagnrýni að það komi einhverjar raunhæfar lausnir miðað við stöðuna eins og hún er sem hjálpa okkur við að inngilda innflytjendur betur inn í okkar samfélag. Sérstaklega skil ég ekki þessa gagnrýni á þessa miklu áherslu sem við erum að setja á íslenskukennslu, bæði í gegnum atvinnulífið og sömuleiðis líka grunnskólana og víðar.