framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.
Forseti. Fyrst, svo ég gleymi því ekki þá vakti athygli mína að hæstv. ráðherra virðist leggja annan skilning í orðið inngilding en hans eigið ráðuneyti. En hæstv. ráðherra getur kannski farið betur yfir það við tækifæri.
Hins vegar varðandi íslenskukennsluna. Ég veit ekki hvort hæstv. ráðherra missti af samtali mínu við Rögnu Sigurðardóttur, hv. þingmann, um það mál. Ég er alls ekki að leggjast gegn íslenskukennslu en menn verða að vita hvert þeir ætla með henni og auðvitað, ef menn eru í þjónustustörfum, til að mynda, að annast eldri borgara hér á sjúkrastofnunum eða að annast yngstu aldurshópana á leikskólum, þá á þetta fólk að kunna íslensku. Það ætti að vera skilyrði þess að fá vinnuna. Svo heyrir maður þennan gamla söng sem ég hefði ekki átt von á frá fyrrum verkalýðsleiðtoga, en þetta með að Íslendingar vilji ekki vinna ákveðin störf. Af hverju? Af hverju er það? Eru þau ekki nógu fín fyrir þau eða eru launin of lág? Komast menn upp með að greiða lægri laun en ella með því að flytja inn ódýrt vinnuafl? Því ef vinnuafl á Íslandi á ólíkum sviðum er í samkeppni við vinnuafl frá löndum þar sem laun eru miklu lægri og kröfurnar minni þá veikir það samkeppnisstöðu þess vinnuafls, það gerir það óhjákvæmilega. Ef raunin er sú að til að halda uppi hagvexti þurfum við stöðugt að flytja fleiri og fleiri til landsins þá erum við ekki með sjálfbært hagkerfi. Hagvöxtur á mann á Íslandi hefur verið nánast ekki neinn undanfarin ár. Það er búinn til eins konar gervihagvöxtur eða jafnvel mætti kalla hann lánshagvöxt, með því að flytja inn vinnuafl á lágum launum fremur en að reyna að búa til sjálfbært hagkerfi.