158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[15:53]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið en byrja á að leiðrétta: Það voru ekki mín orð að fólk nennti ekki að vinna þessi störf. Ég talaði um það að það tækist ekki að manna þessi störf. Við sjáum auðvitað fram á mikla öldrun þjóðar og miklu meiri þörf í ákveðnum greinum og geirum. Það hefur gengið erfiðlega að manna störf, t.d. umönnunarstörfin, og þess vegna er það auðvitað mjög mikilvægt, eins og þingmaður kemur inn á, að styðja við frekari íslenskukennslu til að styrkja fólk til þess að geta sinnt þessum störfum sem hefur, aftur, gengið illa að manna.

Ég sakna þess, og kalla kannski eftir því aftur í minni seinni spurningu — ég þekki það vel að það er auðvitað mjög auðvelt að gagnrýna allt sem gert er — ég kalla enn og aftur eftir raunhæfum lausnum miðað við þá stöðu sem íslenskt hagkerfi er í, það háa hlutfall á vinnumarkaði sem er af erlendum uppruna, og raunhæfum lausnum. Lausnin getur ekki verið sú að loka landamærunum og vísa fólki úr landi eftir atvikum eða fara í einhverjar aðgerðir sem koma í veg fyrir að okkur takist að manna mikilvæg störf í mikilvægum atvinnugreinum eins og mannvirkjageiranum, ferðaþjónustunni og víðar. Ég kalla eftir einhverju sem getur kannski gert þessa umræðu aðeins málefnalegri og frjórri og að komið sé frekar með hugmyndir frekar en endalausa gagnrýni. Ég skil svo sem alveg að það er hægt að gagnrýna. Ég bendi líka hv. þingmanni á atvinnustefnu stjórnvalda sem byggir einmitt meira og minna á því að búa hér til störf sem skapa hagvöxt og meiri hagvöxt á mann.