framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Ég ætla að leggja örfá orð í belg hvað varðar þessa tillögu um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda. Ég hef nú flett þessu aðeins og mér sýnist óhætt að segja að þegar maður flettir þessu bara hratt og les fyrirsagnir og reynir að átta sig á því hvað hér er um að ræða þá kemur mér í huga að þetta er allt varðað góðum ásetningi, engin spurning. Það hefur reyndar lengi verið þannig og það hefur líka verið þannig í Evrópu í hverju landinu á fætur öðru að innflytjendastefnan er öllsömul vörðuð góðum ásetningi, góðum fyrirætlunum. Það er kannski einmitt gallinn. Menn hafa ekki tekið raunverulega á þessum vandamálum sem fylgja stórauknum fjölda innflytjenda í þessum löndum.
Mér sýnist einnig þegar ég lít yfir þetta hratt að þessum fjármunum sem þarna er verið að verja til hinna ýmsu stofnana — allt saman eru þetta að mörgu leyti góð mál og varla hægt að finna sérstaklega að einhverjum ákveðnum liðum hér. Ég ætla aðeins, með leyfi frú forseta, að lesa upp nokkrar fyrirsagnir:
„Notendaúttekt á gæðum kennslu í íslensku fyrir fullorðna.“
Seinna:
„Markmið: Íslenska verði samskiptamálið á Íslandi […]“.
Já, þetta er alveg frábær hugmynd og ég styð hana, o.s.frv.:
„Uppbygging fjölbreyttrar og árangursríkrar upplýsingaþjónustu […]
Fræðsluhlutverk Vinnumálastofnunar verði eflt.
Lýðræðisþátttaka og lýðræðisfræðsla.
Opinber störf aðgengileg fyrir alla.
Stuðningur við geðheilbrigði flóttafólks með sálrænum stuðningi.
Tryggt aðgengi flóttafólks að gagnreyndri meðferð við áfallastreituröskun.“
Þetta er allt hið besta mál. Þetta er svolítið orðagjálfur, frú forseti. Maður fær pínulitla svona tilfinningu fyrir því að þarna sé nú verið að reyna að koma til móts við einhverjar kröfur um eitthvað sem menn vita ekki nákvæmlega hvernig þeir eiga að fara að. Þess vegna eru settar 15 milljónir hingað, 100 milljónir þangað, 30 þangað, og þið fáið hérna 20 til að gera þetta. Og hvað gerist? Þetta er, eins og ég hef oft séð af því að ég hef unnið í kerfinu í áratugi, dreifing fjármuna til hinna ýmsu stofnana sem bætast við rekstrargrunn þeirra. Svo gera þeir eitthvað, gefa út bækling eins og einhver nefndi áðan eða eitthvað annað og eru þar með búnir að uppfylla sínar skyldur samkvæmt þessari áætlun. Því miður, frú forseti, lítur þetta svolítið út eins og yfirborðskennt fálm. Ég er ekki á móti þessu, hæstv. ráðherra, en við þurfum bara að taka öðruvísi á þessum málum. Þetta má alveg vera með, ég er ekki á móti þessu. En við þurfum auðvitað að taka á þessum málum.
Ég starfaði í lögreglunni í áratugi, fór erlendis nokkrum sinnum til að hitta lögregluforingja annars staðar, og hvað var þeirra helsta verkefni, frú forseti? Ekki núna nýlega, fyrir 20 árum, herra forseti, og jafnvel lengra síðan. Hvað var þeirra helsta verkefni? Innflytjendamál alltaf hreint, ekki helsta verkefnið heldur líka í öðru sæti og í þriðja sæti. Hvað þurfum við að gera í þessum málum, frú forseti? Hvað er augljóst að við þurfum að gera? Í fyrsta lagi, frú forseti: Við erum komnir með of mikið af innflytjendum nú þegar á Íslandi til að geta ráðið sæmilega við það verkefni að gera það sem þessi áætlun miðar að, þ.e. að hér verði áfram töluð íslenska, að við höldum í íslenska menningu og þetta samfélag verði íslenskt, svona til nánustu framtíðar.
Í öðru lagi, frú forseti, erum við að flytja inn og samþykkja að hingað komi mikill fjöldi af fólki sem hefur allt öðruvísi bakgrunn en við eigum að venjast og er ekki að aðlagast og vill jafnvel ekki aðlagast, herra forseti. Við eigum að taka stjórn á þessum málum. Við eigum ekki að láta þetta hellast yfir okkur. Við eigum að hafa val um það hverjir koma hingað og eigum að stjórna því til að geta verndað okkar litla og fámenna samfélag. Við eigum að setja mörkin. Við eigum að gera kröfur, herra forseti. Við eigum ekki að vera lítil í okkur. Við eigum að stjórna. Við megum ekki missa tökin á þessu. Ef hingað koma einhverjir óknyttamenn sem ekki aðlagast íslensku samfélagi þá eigum við að brottvísa þeim, ekki eftir að hafa farið í gegnum dómskerfið í fjögur ár, við eigum að gera það strax. Við eigum að gera kröfur. Hvað varðar ríkisborgararétt og hvað varðar kröfu um íslensku — að sjálfsögðu. Ég veit um fólk í Svíþjóð sem fær ekki vinnu ef það kann ekki sæmilega sænsku. Það er bara sjálfsögð og eðlileg krafa. Hér kemur maður hvergi í þjónustu nema tala ensku, næstum því hvergi.
Við erum að missa tökin á þessu, herra forseti, ef við viljum vernda íslenska tungu og þar með menningu okkar. Við eigum að velja þá sem hingað koma. Við eigum að velja fólk sem getur aðlagast íslensku samfélagi. Við eigum að brottvísa þeim sem brjóta af sér strax, ekki eftir fjögur eða fimm ár. Við eigum ekki að fá hingað fólk sem er líklegra til að fara beint á velferðarkerfið. Dæmi eru um að sumir hópar, stórir hópar jafnvel, fari beint hérna á velferðarkerfið og mjög lítill hluti þess fólks hefur nokkurn hug á því að fá sér venjulega vinnu, ekki neinn áhuga á því.
Herra forseti. Ríkisborgararétturinn er að mínu mati heilagur réttur. Við eigum einnig að gera skýlausar og harðar kröfur í þeim efnum að enginn fái hér ríkisborgararétt nema að uppfylla einhver lágmarksskilyrði, eins og er í lögunum núna. Við eigum að herða þær kröfur. Við eigum að gera skilyrðislaust kröfu um að þeir sem fá ríkisborgararétt skilji íslensku og tali hana svo skiljanlegt sé. Við eigum að lengja í þeim tíma þar til fólk á að geta fengið ríkisborgararétt og við eigum að gera alvöru kröfur vegna þess að þetta er okkar heilagasti réttur. Þeir sem byggðu þetta land — ef þú kemur sem gestur og vilt taka þátt í samfélaginu þá er það auðvitað sjálfsagt að þeir sem fyrir eru hafi eitthvað um það að segja hver hans viðhorf eru til þess samfélags sem hann ætlar að ganga inn í, herra forseti. Að sjálfsögðu eigum við að gera þessar kröfur.
Um leið og ég endurtek það sem ég sagði hvað varðar lögregluna, sem ég þekki kannski hvað best til — að ég tel að við séum á ákveðnum krossgötum, Íslendingar. Við erum á þessari leið, herra forseti, að vera komin nánast í fótspor nágrannaþjóða sem berjast mjög mikilli baráttu til að ná tökum á bæði glæpagengjum og mikilli misnotkun á opinberum kerfum. Við megum bara ekki fara þangað. Þess vegna verðum við, eins og ég sagði, herra forseti, að gera kröfur.