framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að lýsa yfir ánægju með þessa framkvæmdaáætlun sem við fjöllum um hér í dag. Það hefur verið áhugavert að hlusta á þessa umræðu, ég hef verið að reyna að greina hvort fólk í minni hlutanum sé almennt ánægt með að hér sé lögð fram framkvæmdaáætlun eða ekki. Það er svona ákveðnum áskorunum lýst sem einmitt er tekið á í framkvæmdaáætluninni og síðan er lögð lykkja á leið sína kannski til að ræða um aðgerðir á landamærum.
En það eru tvö verkefni sem íslensk stjórnvöld standa frammi fyrir. Annars vegar það sem kemur að landamærunum og þar hefur ríkisstjórnin heldur betur látið verkin tala, að fella úr gildi sérstakar íslenskar reglur, 18 mánaða regluna. Farið er að brottvísa þeim sem fremja glæpi hér á landi. Við höfum lagt fram nýja atvinnustefnu einmitt til að stuðla að því að við fjölgum störfum í háframleiðnigreinum en flytjum ekki bara inn erlent vinnuafl sem skapar ekki ákveðinn hagvöxt hér á landi, til að stuðla að því að við séum með sjálfbæran vöxt í hagkerfinu. Þetta eru allt skref sem þessi ríkisstjórn hefur verið að stíga á síðastliðnum árum.
En þá er það hitt verkefnið. Á síðustu árum hefur verið metfjölgun erlendra íbúa eða innflytjenda á Íslandi, hæsta hlutfall innan OECD-ríkjanna. Þessi hópur býr hér á Íslandi, starfar hér á Íslandi og hér er svolítið reynt að mála upp þá mynd að þetta séu allt einhvers konar glæpamenn en það er auðvitað bara örlítið brot þeirra innflytjenda sem koma til Íslands sem fremur glæpi. En verkefnið er að það er ekki nóg að læra af Norðurlöndunum, nágrannaríkjunum, þegar kemur að landamærunum okkar, þegar kemur að því að tryggja að við séum ekki með séríslenskar reglur á þeim. Við þurfum líka að læra af þeim hvað gerist ef stjórnvöld standa sig ekki í að vinna að því að innflytjendur nái að aðlagast íslensku samfélagi. Hér er framkvæmdaáætlun sem snýr einmitt að þessu, að taka á þessum helstu þáttum sem eru ráðandi í því hvort innflytjendur nái að verða hluti af íslensku samfélagi eða hvort þeir verði einhvers konar sérmenningarhópur sem skilur ekki tungumálið, að börnin taki ekki þátt í íþrótta- og tómstundastarfi og að þeir taki ekki þátt í samfélagslegri umræðu og lýðræðislegum kosningum.
Hér er verið að leggja fram metnaðarfulla áætlun til að taka á þessum verkefnum og ég held að við ættum hér á Alþingi að sameinast í því að læra af nágrannaríkjunum okkar og ekki gera sömu mistök. Ekki halda að það nægi að tala bara um vandamálið, að gera lítið úr öllum aðgerðum sem snúa að því að tryggja að innflytjendur aðlagist íslensku samfélagi, og það er einmitt það sem inngilding þýðir, þ.e. hvaða aðgerðum stjórnvöld ætla að beita til að stuðla að því að innflytjendur aðlagist íslensku samfélagi. Það er ekki neikvætt hugtak í þessu sambandi. Það er einmitt til að tryggja samheldni í samfélaginu, að hér sé ekki ólík menning sem fari jafnvel að skella saman eins og við sjáum víða á Norðurlöndunum, og fólk nái ekki að eiga samskipti.
En eins og ég segi, ég fagna þessari framkvæmdaáætlun. Ég fagna þeim aðgerðum sérstaklega sem snúa að börnum og ungmennum því að þau sem eru komin hingað til lands með börn og ungmenni eru náttúrlega þau sem eru að setjast hér að. Það eru börn sem ganga þá í íslenska skóla, eignast íslenska vini og við þurfum að stuðla að því að þau fari í gegnum sama kerfi og íslensku börnin okkar. Íþrótta- og tómstundastarf er t.d. miklu stærri hluti af daglegu lífi íslenskra barna en víða í öðrum löndum. Það sýna þátttökutölur varðandi þetta. Því miður er það þannig að þátttaka barna af erlendum uppruna er talsvert slakari þegar kemur að þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi. Ég fagna því að hér eigi að stíga markviss skref til að stuðla að þessu. Það þarf líka að vinna með foreldrunum til að þeir séu meðvitaðir um þessa íslensku hefð, þessa íslensku menningu og mikilvægi íþrótta- og tómstundastarfs. Ég fagna því líka sem snýr að tungumálakennslunni. Íslenskan er lykillinn að samfélaginu okkar og lykillinn, einmitt ef við horfum aftur á fjölskyldurnar með börnin, að því að foreldrarnir geti tekið þátt í lífi barnanna sinna, skólasamfélaginu, að þau skilji tungumálið. Þannig að ég fagna því að hér eigi að stíga markviss skref í þessum efnum.
Ég geri ráð fyrir að nefndin muni vinna með þessar tillögur í sinni umfjöllun en mér finnst áhugavert hvernig umræðan er hér einhvern veginn að reyna að draga það upp að hér séu allir sem koma til landsins annaðhvort glæpamenn eða að við þurfum að kortleggja alla glæpatíðni erlendra innflytjenda. Ég fagna því sem hæstv. ráðherra boðaði þó að það sé eðlilegt að líkt og á Norðurlöndunum og í kringum okkur séu unnin heildstæð mælaborð sem snúa að því hvernig innflytjendum sem koma til landsins gangi að aðlagast samfélaginu. Vissulega er það hvort þeir séu að fremja glæpi einn hluti af því en þetta eru miklu víðtækari mælaborð. Þetta snýst líka um hlutfall þeirra sem eru með atvinnu, hlutfall þeirra sem læra tungumál, þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi, þátttöku í lýðræðislegum kosningum og fleira. Þannig að við eigum að hafa áhuga á því, metnað og vilja til að tryggja að þeir sem koma hingað til landsins aðlagist íslensku samfélagi, taki virkan þátt, læri tungumálið, taki þátt í þeim hefðum og venjum sem við höfum hér á landi. Þar eru börnin sérstakur lykill og því fagna ég þessari framkvæmdaáætlun.