höfundalög.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á höfundalögum. Frumvarpið var lagt fram á síðasta löggjafarþingi en það tókst ekki að ljúka þinglegri meðferð og er frumvarpið því lagt fram að nýju óbreytt. Með frumvarpinu er lagt til nýtt ákvæði þar sem hámarksrefsing fyrir stórfelld og ítrekuð höfundarréttarbrot varði allt að sex ára fangelsi, en almennt refsiákvæði í dag kveður á um tveggja ára hámarksrefsingu. Með þyngri viðurlögum er lagt upp með að rannsókn brota fái meira vægi. Þau geti færst til miðlægrar deildar lögreglu og hægt verði að vinna slík mál í alþjóðlegu samstarfi. Það hefur færst í aukana hér á landi að höfundarréttarvörðu efni sé streymt og því miðlað með ólögmætum hætti, einkum í gegnum IP-sjónvarp og myndþjóna. Á árinu 2024 kom fram í könnun Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði (FRÍSK) að um 30% svarenda sögðust hafa sótt eða streymt höfundarréttarvörðu efni og hlutfallið var enn hærra í hópi ungra svarenda, eða 59%. Þessar niðurstöður voru síðan staðfestar í nýrri könnun FRÍSK frá því í sumar þar sem tæplega þriðjungur Íslendinga viðurkenndi að nýta sér ólöglegt streymi og niðurhal. Áhrif sjóræningjastarfsemi með höfundarréttarvarið efni eru því veruleg. Helst má nefna gríðarlegt tekjutap efnishöfunda og rétthafa sem getur dregið úr framleiðslu á sjónvarpsefni og grafið undan kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu hér á landi. Það hefur verið áætlað að tekjutap vegna ólöglegs streymis á sjónvarpsefni sé um 4 milljarðar kr. á ári. Með ólöglegu streymi eru notendur einnig að stefna netöryggi sínu í hættu þar sem efnið er oft sótt á ótrygga miðla og myndþjóna ásamt því að sjóræningjastarfsemi sem þessi er iðulega notuð til þess að fjármagna skipulagða glæpastarfsemi. Bæði Interpol og Europol hafa sýnt fram á tengsl hugverkaþjófnaðar við glæpahópa sem fjármagna aðra alvarlega glæpi með þessari leið.
Virðulegur forseti. Liður í viðbrögðum stjórnvalda er að leggja til hækkun á hámarksrefsingu höfundalaga þannig að hún endurspegli betur alvarleika stórfelldra brota gegn höfundalögum og sé einnig í samræmi við refsingu fyrir samsvarandi brot á Norðurlöndum og í Evrópu. Það er rétt að halda því til haga að áhersla frumvarpsins liggur í stórfelldum og ítrekuðum brotum og eðli máls samkvæmt falla almennir neytendur sem streyma eða kaupa aðgang að ólögmætu efni yfirleitt ekki undir skilgreiningu á stórfelldri brotastarfsemi. Sérstaklega er verið að horfa til aðila sem hlaða upp og dreifa efni eða selja búnað sem veitir aðgang að höfundarréttarvörðu efni.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 54. grein höfundalaga þannig að við ákvæðið bætist ný málsgrein þar sem tilgreind er sex ára hámarksrefsing fyrir stórfelld eða ítrekuð brot gegn lögunum. Við mat á því hvort um stórfellt brot sé að ræða ber að líta til þess hvort háttsemin hafi verið í atvinnuskyni, sé sérstaklega umfangsmikil, hafi haft verulegt fjárhagslegt tjón í för með sér fyrir rétthafa, hvort hinn brotlegi hafi haft ávinning af háttseminni eða hvort hún hafi verið skipulögð eða hluti af skipulagðri glæpastarfsemi. Jafnframt þessu hef ég þegar sett á fót starfshóp sem hefur það hlutverk að leggja fram tillögur til að sporna enn frekar við sjóræningjastarfsemi við höfundarréttarvarið efni og hópurinn mun skila af sér tillögum fyrir lok ársins.
Virðulegur forseti. Nú eru að alast upp kynslóðir sem tengja ekki við að ólöglegt streymi eða niðurhal sé þjófnaður. Það hafa kannanir sýnt okkur. Það er því ljóst að þar er þörf á vitundarvakningu til að auka skilning á lagalegum og samfélagslegum afleiðingum höfundarréttarbrota. Um leið er afar mikilvægt að bæði löggjöf og viðbrögð löggæsluyfirvalda endurspegli alvarleika þess að deila höfundarréttarvörðu efni á stórfelldan hátt og gera það aðgengilegt í stórum stíl. Það er aðalmarkmið þessa frumvarps.
Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar.