höfundalög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Það má vel vera að þessi breyting sé til hins betra, að það skipti máli að standa vörð um innlenda menningarstarfsemi og framleiðslu en ég velti fyrir mér svona þyngingu á dómum að skoða hana í samhengi annarra dóma. Til að mynda er hámarksrefsing fyrir hefndarklám allt að fjögur ár, fyrir kynferðislega áreitni gagnvart eigin barni allt að fjögur ár, framleiðslu á barnaklámi sex ár, stafræn brot, hver sem í heimildarleysi verður sér úti um aðgang að gögnum eða forritum annarra sem geymd eru á tölvutæku formi, eitt ár. Hver sem brýtur gegn friðhelgi einkalífs annars, eitt ár. Ef maður hefur fé af öðrum með því að hóta eða beita hann eða nána vandamenn hans líkamlegu ofbeldi, sex ár, og brot gegn nálgunarbanni, eitt ár. Er rétt forgangsröðun að verja tíma þingheims í þetta mál þegar þarna er verið í sumum tilfellum að hækka hámarkslengd dóma, hámarkslengd refsingar, umfram aðra alvarlega glæpi sem manni finnst að ættu kannski að vera með lengri dóma sjálfir?