158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

höfundalög.

108. mál
[16:30]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Varðandi það hvort rétt sé að eyða tíma þingheims í þetta frumvarp þá erum við a.m.k. ekki að gera það í dag sýnist mér á þingsalnum. En við erum að horfa til þess, eins og ég nefndi í framsögunni, að hækka þetta til samræmis við það sem gerist í nágrannalöndum okkar, Danmörku og Svíþjóð, þar sem þetta eru sex ár, sjö ár í Frakklandi og svo mætti áfram telja. Þau dæmi sem hv. þingmaður tekur má alveg eyða talsverðri umræðu í en hér erum við fyrst að miða við sambærilega hluti í okkar refsilöggjöf. Það liggja töluvert þyngri refsingar eða refsiheimildir vegna brota fyrir eignaspjöll á áþreifanlegum eignum og hér er um eign fólks að ræða. Okkur hættir stundum til að nálgast höfundarétt, vegna þess að það er óáþreifanleg vara oft og tíðum, sem eitthvað sem skiptir minna máli en skópar, ísskápur eða bíll. Hér er bara verið að gæta samræmis þar á milli og líka að tryggja að málið geti fengið betri rannsókn hjá lögreglu. Með þessu skapast möguleikar lögreglu til að vera í samskiptum við erlend lögregluyfirvöld og þetta er mál sem er oft tengt alþjóðlegri glæpastarfsemi og þess vegna er full ástæða til að stíga þetta skref. Ég nefndi líka hversu hátt tjónið af þessu er á hverju ári og það er verulegt.