158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

höfundalög.

108. mál
[16:32]
Horfa

Júlíus Viggó Ólafsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Það er alveg rétt að það skiptir máli að standa vörð, eins og ég sagði í fyrri ræðu minni, um innlenda menningarstarfsemi og framleiðslu og það er vel. Ég skil það líka að þetta er málaflokkur ráðherrans og kannski ekki þau brot sem ég taldi upp, en manni finnst þetta sérstakt í samhengi hlutanna þegar um er að ræða refsingar við öðrum glæpum og auðvitað þurfum við alltaf að meta refsingar í samhengi við refsingar við öðrum glæpum. Telur hæstv. ráðherra að ríkisstjórnin áformi að fara í breytingar á dómum fyrir annars konar glæpi, fyrir alvarlega ofbeldis- eða kynferðisbrotaglæpi, til þess að refsing við slíku broti sem um ræðir hér virðist kannski í meira samræmi við refsingar fyrir aðra alvarlega glæpi?