höfundalög.
Virðulegur forseti. Jú, auðvitað á það alltaf að vera til skoðunar hver refsiramminn er í einstökum málaflokkum og það er m.a. hlutverk hv. þingmanns að halda því til haga og honum er frjálst að leggja slíkar tillögur til. Hér er ég eingöngu að ræða þetta. Miðað við núverandi stöðu er það þannig að rannsókn brotanna liggur eingöngu í því umdæmi þar sem brotið er framið og þau umdæmi hafa sjaldan sérþekkingu á þessum málum. Þannig að nú erum við að tryggja með þessu frumvarpi að það séu til fleiri rannsóknarúrræði. Að það verði t.d. heimil afhending fjarskiptagagna sem og samstarf við Interpol og Europol og þetta séu brot sem verði rannsökuð af miðlægri rannsóknardeild lögreglu þar sem safnast hefur meiri sérhæfing til. Svo ég vísi nú efnislega í ummæli sænska menningarmálaráðherrans þá segir hann að það sé orðið stórt vandamál fyrir kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðinn í Svíþjóð að peningarnir, sem ættu að fara til fjölmiðlafyrirtækjanna eða rétthafanna, fari hins vegar beina leið í vasann hjá glæpamönnum.