158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

höfundalög.

108. mál
[16:39]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Mig langar að nota þessa seinni ferð mína hér til að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í annað, sem er auðvitað ekki óskylt en af allt öðrum toga þó. Nú erum við að horfa upp á, með tilkomu gervigreindarinnar, ótrúlega hratt vaxandi færni gervigreindarinnar til að umbreyta efni með þeim hætti að það virðist ekki eiga annan uppruna en bara hjá gervigreindinni sjálfri en er kannski í rauninni efni sem er höfundaréttarvarið. Gervigreindin virðist vera orðin ofboðslega fær í að fara akkúrat nógu langt, hvort sem það varðar tónlist eða myndbrot eða eitthvað slíkt, til þess að vera komin með nógu margar breytur til að vera ekki lengur það sem kallað var hér áður stuldur á höfundarétti. Við þekkjum meira að segja að íslensk mál hafa verið höfðuð vegna laga sem erlendir tónlistarmenn skrifuðu á sig. Þá er notast við einhvers konar viðmiðun þar sem ákveðinn fjöldi hljóma og annað slíkt er notað til að bera saman upprunalega efnið og svo það efni sem talið er vera stolið, afleiðan, og það er einhver formúla notuð til að meta hvort það sé stuldur eða ekki. Hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér að við ráðum við þetta með þessari gríðarlegu tækni, því að hún virðist vita nákvæmlega hversu langt hún þarf að ganga til að vera komin, ef svo má segja, í var gagnvart lögunum?