158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

höfundalög.

108. mál
[16:41]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, þetta er bara mjög áhugaverð spurning. Þarna finnst mér nú ég og þingmaðurinn vera að nálgast það að það skiptir nefnilega máli að verja hérna eignarrétt höfunda með einhverjum hætti. Við erum vissulega að glíma við brjálæðislega hraða og fullkomna tækni núna, gervigreindina, sem er að þróast. Í henni eru jákvæðir hlutir en það eru líka neikvæðir hlutir sem okkur ber að varast og við boðum lög gegn vissum þáttum hennar eftir því sem okkur tekst það, m.a. gagnvart djúpfölsunum á lifandi einstaklingum, sem getur haft hörmulegar afleiðingar í för með sér, en líka gagnvart tónlist, myndlist, kvikmyndum og fleiru. Við fylgjumst með þeirri alþjóðlegu þróun sem þar er í gangi. Það er alveg rétt að gervigreindin getur nefnilega farið út á ystu nöf án þess að um beinan stuld sé að ræða, þó að hann sé vissulega óbeinn vegna þess að það má ekki gleyma því að getan til að búa til tónlistina er fengin með því að þessi fyrirtæki hafa oft á tíðum, og sennilega yfirleitt, hlaðið niður þessari músík ólöglega til að nýta sér sköpunarverk listamanna sem á undan komu og gera henni kleift að gera þetta. Ef hv. þingmaður horfði á Silfrið í gær var Andri Snær Magnason rithöfundur þar að lýsa því beinlínis hvernig eitt af þessum stóru tæknifyrirtækjum í Bandaríkjunum stal frá honum „Bláa hnettinum“ og frá ótal öðrum rithöfundum og bjó svo til einhverja afurð út úr því. Þetta á nú enn frekar að ýta undir vilja þingsins til þess að viðurkenna höfundarétt með því m.a. að samþykkja þetta frumvarp.