höfundalög.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hæstv. ráðherra aftur fyrir svörin áðan. Ég vona að það misskiljist ekki að ég er vissulega sammála hæstv. ráðherra um mikilvægi þess að komið sé fram við óveraldlegar og óáþreifanlegar eignir eins og höfundaréttarvarin verk, af sama alvarleika og komið er fram við aðrar eignir og er þess vegna ekki á móti því að setja alvarlegri refsingu við því að stela slíkum eignum. En ég held að hinn almenni Íslendingur spyrji sig svolítið þegar kemur að refsingum sem við höfum hér á Íslandi fyrir mismunandi glæpi að þetta virðist oft ekki vera í miklu samhengi. Dómsmálaráðherra lagði á dögunum fram drög að frumvarpi um að þyngja refsingar fyrir kaup á vændi af börnum úr tveimur í fjögur ár af fangelsisvist. Manni finnst þetta svolítið skrýtið þegar maður lítur á það hvernig við erum að koma fram við svona alvarlega glæpi, að við leyfum því að líðast. Manni finnst það ekki vera nægilega alvarleg refsing fyrir svo alvarlega glæpi. Þess vegna er ég ekki að mæla sérstaklega gegn því frumvarpi sem hæstv. ráðherra er að leggja fram hér heldur kannski frekar að spyrja spurninga eins og: Hvernig erum við að forgangsraða málum hérna? Af hverju leggjum við ekki meiri áherslu á það að við séum raunverulega að refsa fólki fyrir alvarlega glæpi? Þegar Íslendingar sitja saman á kaffistofunni og ræða málin þá finna þeir bara í maganum að það er ekki rétt að taka svona léttlega á svo alvarlegum glæpum. Þess vegna spurði ég líka hæstv. ráðherra hvort það séu einhver frekari áform hjá ríkisstjórninni, því ríkisstjórnarborði sem hann situr við, að fara að einblína meira á þessi mál, að kanna hvort tilefni sé til þess að endurskoða hversu þungar refsingar eru á Íslandi við svo alvarlegum glæpum og hvort það þurfi ekki að líta á samhengi þess að hér er verið að leggja til að þyngja dóma fyrir alvarleg og ítrekuð höfundaréttarbrot, hvort við þurfum þá ekki að líta á önnur brot og uppfæra hvernig við metum þau og alvarleika þeirra.