gjaldskrárhækkanir.
Virðulegi forseti. Það er kannski sniðugt að við tökum okkur tveggja mínútna hlé til að róa okkur niður, held ég. Það væri ágætistillaga. Ég ætla samt að reyna að eiga orðastað við hæstv. ráðherra.
Virðulegur forseti. Ríkisstjórninni er tamt að hrósa sjálfri sér fyrir ýmislegt, hvort sem það er að negla niður verðbólgu og/eða að hækka ekki skatta. Staðreyndin er hins vegar sú að verðbólga, vextir og skattar fara síhækkandi. Sjálfshól ríkisstjórnarinnar nær þó einnig til annarra þátta. Ríkisstjórnin hefur ítrekað hreykt sér af því hvað hún standi sterkan vörð um þá sem minna mega sín. Það skýtur því skökku við að ríkisstjórnin hefur boðað ýmsar skattahækkanir í fjárlögum sem lenda m.a. á öldruðum og öryrkjum. Má þar t.d. nefna hækkun á tekjuskatti, hækkun á skatti á heimilin í formi forvarnagjalds og kílómetragjaldið sívinsæla. Verst var þó þegar ríkisstjórnin ákvað að setja sérstök komugjöld í sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun fyrir aldraða og öryrkja sem falla auk þess ekki í afsláttarstofn. Slík þjálfun þarf eðli málsins samkvæmt að vera stunduð reglulega og oft í lengri tíma. Kostnaður langveikra við að nýta sér þessa þjónustu getur því hæglega margfaldast vegna þessara breytinga.
Því vil ég spyrja hæstv. barna- og menntamálaráðherra hvort ekki hafi verið hægt að haga hækkun komugjalda og boðuðum skattahækkunum á þann veg að þær myndu ekki bíta aldraða og öryrkja, sér í lagi í ljósi þess að slíkar hækkanir leggjast einmitt þyngst á þann samfélagshóp.