158. löggjafarþing — 11. fundur,  24. sept. 2026.

gjaldskrárhækkanir.

[13:44]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Virðulegur forseti. Ég átta mig reyndar ekki alveg á síðustu sneið hæstv. ráðherra en hún kannski skýrir það fyrir mér síðar. En ég hlýt að fagna, virðulegi forseti, þeim orðum hæstv. ráðherra um að það standi til að endurskoða þessi gjöld. Ég vona svo sannarlega að það verði í þá þágu að lækka þau en ekki að hækka þau.

Mig langar líka til að nefna það hér, af því að hæstv. ráðherra heldur því eiginlega fram að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið eitthvað sérstaklega vondur við gamla fólkið og öryrkjana, að mér finnst hreinlega undarlegt að hæstv. ráðherra geri okkur upp þessar hvatir. Það var einmitt ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins sem byrjaði með eingreiðslur til öryrkja í desember ár hvert til viðbótar við desemberuppbót lífeyrisþega og það gerðum við án þess að hækka tekjuskatt sama hóps á móti. Svo verður auðvitað að nefna það að vísitölumálið, sem hefur í rauninni komið fram oft hér áður, var auðvitað eins og eldur á verðbólgubálið líkt og seðlabankastjóri varaði við. Og hver er staðan nú? Síhækkandi vextir, aukin verðbólga og kjarasamningar í uppnámi. Það er staðan, hæstv. ráðherra.