158. löggjafarþing — 11. fundur,  24. sept. 2026.

gjaldskrárhækkanir.

[13:46]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Jú, við glímum við ýmsar áskoranir. En staðreyndin er sú að Sjálfstæðisflokkur hv. þm. Ólafs Adolfssonar hefur barist gegn því með kjafti og klóm að okkur tækist að leiðrétta og hækka og auka við greiðslur inn í almannatryggingakerfið. Það hefur verið alveg alfa og ómega að það væri í rauninni það sem myndi nánast hvolfa þjóðarskútunni og, eins og hv. þingmaður ýjar að, að verðbólgubálið og vextirnir og annað slíkt — eins og það væri í rauninni því að kenna að við lyftum upp fátækasta fólkinu í landinu, að það væri hægt að setja þá sök á almannatryggingaþega í neðstu tekjutíundunum ef okkur gengi ekki nógu vel. Það er bara ekki svo, hv. þingmaður. En Sjálfstæðisflokkurinn, með fullri virðingu, hefur einmitt staðið vörð um það og komið í veg fyrir það eins og hann hefur mögulega getað, með öllum tiltækum ráðum, að okkur tækist að tengja launavísitölu við almannatryggingar. (ÓA: Það er hárrétt.)