aðkoma ráðherra að afsögn mennta- og barnamálaráðherra.
Virðulegur forseti. Stjórnmál ganga út á heilindi, heiðarleika og trúverðugleika. Í siðareglum fyrir alþingismenn segir í 5. gr., með leyfi forseta:
„Alþingismenn skulu sem þjóðkjörnir fulltrúar:
a. rækja störf sín af ábyrgð, heilindum og heiðarleika“.
Nú er komið upp mál þar sem tveir alþingismenn, hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson og hæstv. ráðherra Inga Sæland, deila um hver aðdragandinn að afsögn þess fyrrnefnda sé raunverulega, þ.e. hvort honum hafi verið stillt upp við vegg og afsagnar krafist eða hvort, eins og hæstv. ráðherra, Inga Sæland, segir, með leyfi forseta:
„Ég upplifi þetta ekki í neinu samhengi við það sem þarna kemur fram.“
Virðulegur forseti. Nú liggja fyrir skrifleg skilaboð þar sem hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni er sagt að ákvörðun um brotthvarf hans hafi þegar verið tekin og valið standi á milli afsagnar eða stríðs.
Virðulegur forseti. Hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson var á sjúkrahúsi. Ég spyr því hæstv. starfandi forsætisráðherra mjög einfaldrar spurningar: Hafði hæstv. starfandi forsætisráðherra, Inga Sæland, afskipti af þessari afsögn fyrrverandi ráðherra, Guðmundar Inga Kristinssonar, (Forseti hringir.) eins og fram hefur komið í skriflegum skilaboðum frá fyrrverandi aðstoðarmanni hans, Guðbjörgu Ingu Magnúsdóttur?