158. löggjafarþing — 11. fundur,  24. sept. 2026.

aðkoma ráðherra að afsögn mennta- og barnamálaráðherra.

[13:57]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina, um heiðarleika og allt það. Ég vísa hér í persónuleg skrif aðstoðarmanns hv. þm. Guðmundar Inga Kristinssonar sem var í rauninni ekki að sinna neinu nema að vera aðstoðarmaður og ég gat ekki séð annað en að þessi skilaboð væru einstaklega hlý og falleg. Ég átta mig engan veginn á einhverju stríði: Annaðhvort segirðu af þér eða stríð. Sannleikurinn er sá að það liggur algerlega fyrir að til þess að svona lagað komi upp þá verður alltaf samtal. Ég og hæstv. forsætisráðherra Kristrún Frostadóttir heimsóttum Guðmund Inga Kristinsson þar sem við sátum með honum vel á annan tíma eftir að hann var nýkominn út af sjúkrahúsinu þar sem við vorum að ræða um menntamálaráðuneytið, um stöðuna og um hans veikindi. Við kveðjumst með það að leiðarljósi að Guðmundur Ingi áskildi sér það að hann myndi gefa sér stundarkorn til að taka ákvörðun um það sem hann ætlaði að gera í framhaldinu. Það var skýrt að þann 8. janúar þá birti hann að vandlega yfirlögðu ráði yfirlýsingar í öllum fjölmiðlum um það að hann hefði ákveðið að stíga til hliðar með tilliti til þess að ætla að eyða orkunni sinni í það að ná bata.

Reyndar hef ég ekkert meira um þetta að segja og mér finnst með hreinum ólíkindum, bara með ólíkindum hvernig er verið að draga fram viðkvæm mál og reyna að búa til úr þeim eitthvað annað en það er. Og ég segi bara enn og aftur: Mín upplifun hefur ekki verið slík sem ég er að lesa hér og sem ég er að skynja í kommentakerfum eða annað. Mín upplifun hefur aldrei verið sú að ég ætlaði að setja á mig plóg og ráðast inn á sjúkrastofu hjá Guðmundi Inga til að skipa honum að segja af sér. Þetta er bara algjörlega úr lausu lofti gripið. Þannig að ég segi bara aftur: Ég er ekki, hv. þingmaður, að upplifa það í neinum takti við það sem þú, Stefán Vagn, hv. þingmaður, kýst að leggja hér fram.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hæstv. ráðherra á að það á að ávarpa forseta en ekki þingmenn beint.)