aðkoma ráðherra að afsögn mennta- og barnamálaráðherra.
Virðulegur forseti. Það kom kannski ekkert sérstaklega á óvart að hæstv. ráðherra Inga Sæland svaraði í engu spurningunni þó að hún hafi verið eins einföld og skýr og hægt er að setja hana fram. Þetta sem ég er hér að spyrja um, og fleiri þingmenn, er ekki eitthvað sem ég er að leggja fram; þetta eru einfaldlega tölvupóstsamskipti aðstoðarmanns til hv. þingmanns. Þetta er ekki eitthvað sem við hér á Alþingi eða í stjórnarandstöðunni erum að búa til. Þetta eru bara upplýsingar sem eru hér á miðlunum í dag. Ég skil ekki hvernig hv. þingmaður getur haft einhverja aðra upplifun og þvílíkur dónaskapur gagnvart hv. þingmanni að koma svona fram og tala um upplifun. Ég verð nú bara að segja, virðulegur forseti, hér enn og aftur að ef þetta eru hlý og falleg skilaboð til þingmanna Flokks fólksins, (Forseti hringir.) guð minn góður, hvernig eru þá hin? Stríð — hlý og falleg.