158. löggjafarþing — 11. fundur,  24. sept. 2026.

aðkoma ráðherra að afsögn mennta- og barnamálaráðherra.

[14:01]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég bara gef lítið fyrir allar þessar stríðsyfirlýsingar hv. þingmanns. Hann tekur hreinlega þennan póst algerlega úr samhengi, eins og honum einum er lagið. Ég segi bara einfaldlega: Ég sá ekki þennan póst, ég sé hann bara í fjölmiðlum í morgun. Þetta eru persónuleg skilaboð aðstoðarmanns við þáverandi hæstv. ráðherra sem tekur í rauninni þann pól í hæðina að birta hann opinberlega. (Gripið fram í.) Persónuleg skilaboð.

(Forseti (ÞSv): Ráðherra er með orðið.)

Eins og ég sé það er aðstoðarmaður ráðherra að aðstoða hann eftir bestu getu. Það eina sem við vorum að leggja allt okkar afl í var að taka utan um hv. þm. Guðmund Inga Kristinsson þannig að hann myndi stíga frá þessu embætti með reisn. (Gripið fram í.) Mér sýnist í rauninni staðan vera orðin eitthvað einkennileg, svo ekki sé meira sagt.