158. löggjafarþing — 11. fundur,  24. sept. 2026.

aðdragandi afsagnar ráðherra.

[14:05]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Þetta heldur þá áfram að vera í raun og veru ágreiningur hæstv. ráðherra við það efni skilaboðanna sem kemur fram í fjölmiðlum núna og eftir situr þá óvissa hjá þingheimi og almenningi um aðdraganda þessarar afsagnar vegna þess að hérna ber mönnum hreinlega ekki saman. Það er auðvitað miður. Ég held að það sé sjálfsagt mál fyrir hvaða ríkisstjórn sem er að ráðherrar skipti um vettvang og aðrir komi inn í staðinn. En það er kannski lágmarkskrafa af hálfu okkar í stjórnarandstöðunni og af hálfu almennings alls að í þessum málaflokki — þar hefur allt verið á niðurleið núna árum saman og maður þyrfti sannarlega á því að halda að ríkisstjórnin gæti gengið almennilega til verks og farið að boða raunverulega nýja framtíðarsýn um alvöruárangur á þessu sviði en við erum enn á ný, í hundraðasta skiptið hér, að eyða orkunni, eins og ríkisstjórnin hefur þurft að gera frá upphafi í þessum málaflokki, í umræðu um mannabreytingar og stólaskipti og komumst aldrei að kjarna máls. Það er grafalvarlegt mál og ég óttast að á meðan (Forseti hringir.) hæstv. ráðherrar eru ekki tilbúnir til að segja einfaldlega algerlega satt um það hvað hefur gengið á í þessum málum séum við föst í þessum skotgröfum, vegna þess að menn hafa ákveðna heimtingu á því að þetta mál sé upplýst.