158. löggjafarþing — 11. fundur,  24. sept. 2026.

svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.

[14:07]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Það vekur nokkra furðu mína að hæstv. forseti skuli hér áðan hafa gert smávægilegar athugasemdir við hvernig bæri að ávarpa þingmenn og slíkt en hafi engar áhyggjur af því eða geri engar athugasemdir við það að hæstv. menntamálaráðherra skuli hér víkja sér undan og ekki bara það, snúa út úr spurningum og henda ásökunum á aðra þegar fyrir liggur að hæstv. ráðherra hefur farið með rangt mál. Í samskiptum við hv. þm. Guðmund Inga Kristinsson fyrir afsögn hans sem ráðherra kom fram að það væri ákvörðun valkyrjanna svokölluðu að hann skyldi fara. „Þessi ákvörðun er eingöngu valkyrjanna“, var sent á hv. þingmann og svo var það undirstrikað með því að árétta að þó að þessi ákvörðun hafi verið tekin vonist menn til að hann fari ekki úr flokknum. (Forseti hringir.)

Hæstv. menntamálaráðherra hefur hér komist upp með það að víkja sér undan spurningum (Forseti hringir.) um það hvort og raunar á hvaða hátt hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) fór með rangt mál og mér þykir það hlutverk hæstv. forseta Alþingis að benda á það.