svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.
Virðulegi forseti. Það er svona spurning hvað virðulegur forseti getur gert í því að við erum hér með ríkisstjórn þar sem hæstv. ráðherrar gera hvað þeir geta til að afvegaleiða almenning í landinu. Hér kom hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og fór að tala um að það væri búið að setja 10.000 milljónir í bílaleigur út af loftslagsaðgerðum. Bara tóm þvæla. Svo kemur hæstv. menntamálaráðherra og eignar sér auðvitað mestu kjarabót sem öryrkjar hafa fengið en hún greiddi atkvæði gegn því máli: 18.000 milljónir til öryrkja. Og til að bíta höfuðið af skömminni þá stendur hérna hæstv. menntamálaráðherra og talar þvert gegn því sem liggur fyrir og allir geta séð sem hafa aðgang að alnetinu.
Virðulegur forseti. Ég bara spyr: Getur virðulegur forseti gert eitthvað í þessu? (Forseti hringir.) Því að því fylgir ábyrgð að vera ráðherra (Forseti hringir.) og það er alvarlegt þegar ráðherrar, aftur og aftur, (Forseti hringir.) afvegaleiða umræðuna.