svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.
Virðulegur forseti. Ég verð að viðurkenna að mér finnst stjórnarandstaðan leggjast ansi lágt í þessum óundirbúna fyrirspurnatíma, er hér trekk í trekk að koma upp og velta sér upp úr einkaskilaboðum milli aðstoðarmanns fyrrverandi ráðherra. Jú, gott og vel, það er pólitík í þessu eins og öðru og fólk vill ræða þetta en ég verð að koma hér upp undir fundarstjórn forseta og setja spurningarmerki við það að það sé ekki stigið inn í þegar hér er verið að nafngreina einstakling úti í bæ og láta ráðherrann svara fyrir einkaskilaboð sem hann er ekki aðili að. Ég geri mér alveg grein fyrir því að hér birtast einhver skilaboð í fjölmiðlum en mér þykir ekki eðlilegt að þingmenn komi hér upp í ræðustól Alþingis og séu að nafngreina þessa fyrrverandi starfsmenn ríkisins og láta ráðherra svara fyrir hennar orð. Mér þykir það ómálefnalegt og eitthvað sem forseti ætti að stíga inn í.