svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.
Frú forseti. Ég vil vekja athygli forseta á því að aftur og aftur fáum við engin svör, hvort sem við spyrjum um það hvort við séum umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu eða ekki. Þrátt fyrir sirka sex tilraunir, frú forseti, fengum við ekki svör. Núna rétt í þessu kom fram að hæstv. forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, sat með hæstv. ráðherra, Ingu Sæland, í tvær klukkustundir með hv. þm. Guðmundi Inga. Og hvað gerist? Hann segir af sér. Hæstv. ráðherrar, Kristrún Frostadóttir, Inga Sæland og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sátu líka í tvær klukkustundir með hv. þm. Ásthildi Lóu. Og hvað gerist? Hún ákveður að segja af sér. Ráðuneytisstjóri hjá hæstv. forsætisráðherra situr yfir ríkislögreglustjóra, mögulega í tvær klukkustundir, og hvað gerist? Hann ákveður að segja af sér. Af hverju, frú forseti, er verið að afvegaleiða umræðuna í stað þess að taka ábyrgð á eigin ákvörðunum?